fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Eyjan

Þóra Kristín kallar Ingu Sæland „sextuga blinda kellingu úr Breiðholtinu“: „Dóni“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 6. október 2017 15:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Inga Sæland. Samsett mynd/DV

„Ég skil svolítið kjósendur í Breiðholtinu, úti á landi eða eitthvað svona, sem að hlaupa í fangið á Ingu Sæland. Blind kelling úr Breiðholtinu, sextug, voða hress. Talar um lífeyrisþega.. hvaða lífeyrisþegar eru á listum innan flokkanna?“

Þetta sagði Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fyrrverandi fréttastjóri á Fréttatímanum í þættinum Ritstjórarnir á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem var sýndur fyrr í vikunni. Lét hún ummælin falla í umræðu um stjórnmálin í landinu en uppgangur Flokks fólksins hefur ekki farið framhjá neinum að undanförnu, hefur flokkurinn nýverið mælst með fylgi á bilinu 5 til 9%.

Þóra Kristín er reynd fjölmiðlakona og rak um skeið veftímarit Vinstri grænna, Smuguna, og starfaði einnig á Stöð 2. Hún bætti svo við:

Ég meina, hún er að tala máli þessa fólks, þessa óánægða fólks sem á sér ekki stað á hinum listunum. Þetta er stór hópur. Þarna er bara sextug alþýðukona, hún er blind, rúnum rist, rosalega mælsk, það bara sogast að henni fylgið frá Sjálfstæðisflokki og þetta þarna fylgi hægra megin sem hefur verið svolítið munaðarlaust. En ég skil það út af fyrir sig að fólk vilji treysta sínum líkum.

Inga Sæland formaður Flokks fólksins segir í samtali við Eyjuna að hún kippi sér ekki mikið upp við þessi ummæli en þau komi á óvart. Hún sé hvorki blind, sextug né búi í Breiðholti, það ætti Þóra Kristín að vita þar sem hún tekið viðtal við sig í fyrra:

Þetta er bara dóni, kurteisi kostar ekki neitt. Svo er þetta ekki alveg satt. Ég er sjónskert miðaldra kona í Grafarholti fyrst hún vill endilega draga það fram. Ég er ekki sextug, ég er nýorðin 58 ára gömul. En það er alveg satt hjá henni að ég er að berjast fyrir réttindum almennings, öryrkja, eldri borgara og lífeyrisréttindum okkar, algjörlega og af fullum þunga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Þetta var fyrirsjáanlegt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Örn Geirsson skrifar: Nýr golfvöllur í Hafnarfirði

Örn Geirsson skrifar: Nýr golfvöllur í Hafnarfirði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“