fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Hrottalegt neteinelti meðal íslenskra barna – Er barnið þitt með þetta smáforrit?

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 14. júlí 2017 15:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég held það sé kominn tími til að foreldrar taki smá ábyrgð og skoði nú það sem er í gangi í símanum og iPadinum hjá sínum börnum og hætti að segja „já mitt barn gerir ekki svona…,“

segir Lóreley Sigurjónsdóttir um hegðun barna og unglinga á samfélagsmiðlum. Lóreley fór inn á smáforritið Musical.ly hjá dóttur sinni eftir að hafa heyrt nokkur dæmi um ljót skilaboð og síður. Þar blasti við henni ógrynni af síðum og ljótum ummælum. Mörg ummæli voru á þá leið að börn eða unglingar voru að hvetja aðra til að taka eigið líf. Lóreley segist vera afar þakklát að börnin hennar hafa aldrei lent í svona neteinelti, en aðgangarnir sem um ræðir eru ekki í eigu barnanna hennar né um börnin hennar.

„Það erum við sem foreldrarnir sem berum ábyrgð á börnunum okkar og hvað þau eru að gera og nota. Held að það sé kominn tími til að fólk hætti að kaupa sér frið með endalausum ipod og símum og fari að ala krakkana upp eins og á að gera,“

segir Lóreley. Hún tjáði sig fyrst um málið á Facebook og birti með færslunni nokkrar myndir sem hún tók af ummælum og aðgöngum. Bleikt hafði samband við Lóreley og ræddi við hana um forritið, það sem finnst inni á því og hvað sé hægt að gera. Lóreley segist vona að foreldrar barna sem lenda í svona einelti haldi vel utan um þau og foreldrarnir sem eiga börnin sem leggja í svona einelti leita hjálpar fyrir sig og börnin sín. Hún bætir því við að krakkar í dag eru orðnir mikið klárari en foreldrar á símana og samfélagsmiðlana og geta oft auðveldlega falið notkun sína fyrir foreldrum. Eins og að búa til aðganga með gervi nöfnum og vera í símanum á næturnar.

Blaðamaður náði í forritið og prufaði að skrifa „hötum“ í leitardálkinn eins og Lóreley benti á. Þá komu upp tugir aðganga.

Svo má hér sjá brot af þeim ummælum sem finnast á þessum síðum:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Hótaði lögreglumanni í Vestmannaeyjum ítrekað lífláti

Hótaði lögreglumanni í Vestmannaeyjum ítrekað lífláti
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“

Davíðs minnst á Alþingi – „Genginn einn litríkasti og áhrifamesti stjórnmálamaður síðari tíma“
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk

Willum Þór Þórsson: Sakna stjórnmálanna en virði mitt núverandi hlutverk
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Leikarinn nær óþekkjanlegur og samsæriskenningar farnar á flug – „Ekki séns í helvíti að þetta sé sama manneskjan“

Leikarinn nær óþekkjanlegur og samsæriskenningar farnar á flug – „Ekki séns í helvíti að þetta sé sama manneskjan“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Áhugaverð tillaga Wenger fær byr undir báða vængi

Áhugaverð tillaga Wenger fær byr undir báða vængi
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

„Þeir tóku þátt í að verja biskupinn alveg fram í rauðan dauðann og mér finnst bara að þeir mættu allir sem einn skammast sín“

„Þeir tóku þátt í að verja biskupinn alveg fram í rauðan dauðann og mér finnst bara að þeir mættu allir sem einn skammast sín“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Kelly Osbourne lætur nettröllin sem hæðast að útliti hennar heyra það – „Sparka í mig liggjandi“

Kelly Osbourne lætur nettröllin sem hæðast að útliti hennar heyra það – „Sparka í mig liggjandi“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.