fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Svali yfirgefur skerið – flytur til Spánar

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 30. desember 2017 15:00

Sigvaldi Kaldalóns

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd: Sigtryggur Ari/DV.

Eins og komið hefur fram þá er útvarpsmaðurinn bráðskemmtilegi, Svali Kaldalóns sem síðast sá um morgunþátt Svala og Svavars á K100, ásamt Svavari Erni, að flytja til Tenerife ásamt fjölskyldu sinni. Fjölskyldan flytur í dag.

Svali heldur úti bloggsíðu þar sem að hann hyggst skrifa inn reglulega fréttir frá Tenerife. Einnig má fylgjast með honum á Snapchat: svalik.

Það er komið að því.

Úfff, jæja það er komið að því. Við förum í fyrramálið kl. 09, laugardagurinn 30.desember, dagur sem við höfum beðið eftir. Það hefur gengið á ýmsu síðustu daga og við höfum þurft að hafa okkur öll við að skrúfa hausinn rétt á. Það er dálítið átak að rífa alla upp með rótum og hefja þetta ferðalag. dagarnir milli jóla og nýárs hafa eingöngu farið í að ganga frá öllu og sem betur fer höfum við haft góða að til að aðstoða með krakkana og öll verkin. Höfum ekki náð að vera í þeim jólaanda sem við erum oftast í.

En allir eru brattir og spenntir, en auðvitað örlar fyrir kvíða líka. Þetta er þannig verkefni að maður þarf að ná að sleppa tökunum á öllu sem maður telur vera norm og taka bara einn dag í einu. Það er allavega mottóið hjá okkur núna. Við erum með 7 stórar töskur, 5 í handfarangri, kerru og eitt stykki reiðhjól meðferðis. Skrýtið að hugsa til þess að það eigi að vera nóg fyrir okkur öll svona miðað við draslið sem maður er búinn að fara í gegnum, maður lifandi hvað maður getur hangið á miklum óþarfa.Þetta er pínu skrítinn tími og það náði toppi (hingað til) þegar við vorum búin að tæma íbúðina og vissum að þangað vorum við ekki að snúa aftur. Höfum búið þarna í rúm 9 ár og því eðlilega margar minningar sem tengjast henni.

En það góða er að við erum að fara að skapa nýjar og frábærar minningar. Það er auður að geta ferðast, skoðað og lært á lífið með margbreytilegu sjónarhorni. Næsta blogg sem verður skrifað verður skrifað á svölunum heima á Calle Galicia, Costa Adeje. Getið líka fylgst með á Snappinu mínu, Svalik.  Bestu kveðjur í bili, Svali og co.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Brotist inn í kirkju
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
Pressan
Í gær

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.