fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
433

Mynd: Lebron James fagnaði sigri Liverpool í heitum potti

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 14. janúar 2018 18:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool virðist ekki sakna Philippe Coutinho mikið ef marka má leikinn gegn Manchester City.

Liverpool lék sér að City á Anfield í dag og er þar með fyrsta liðið til að vinna City í deildinni í ár. Liverpool lék án Virgil van Dijk sem er meiddur. Alex Oxlade-Chamberlain sem hefur verið að bæta leik sinn mikið kom Liverpool yfir snemma leiks með snyrtilegu marki.

Leroy Sane jafnaði fyrir City þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en Joe Gomez og Loris Karius gerðu sig seka um slæm mistök. Roberto Firmino kom Liverpool aftur yfir eftir tæpa klukkustund þegar hann pakkaði John Stones og vippaði svo yfir Ederson í marki City.

Tveimur mínútum eftir mark Firmino var komið að Sadio Mane sem hamraði knettinum í netið. Hörmungar City héldu svo áfram en á 68 mínútu refsaði Mohamed Salah með marki, Ederson hreinsði illa frá marki og Salah skaut boltanum langt fyrir utan teiginn yfir Ederson.

CIty náði að laga stöðuna þegar varamaðurinn, Bernardo Silva minnkaði muninn í 4-2. Það var í uppbótartíma sem City minnkaði muninn í 4-3 þegar Ilkay Gundogan skoraði. City reyndi að jafna leikinn en lærisveinar Jurgen Klopp náðu að halda út.

Einn besti körfuboltamaður allra tíma, Lebron James horfði á leikinn í heitum potti og hafði gaman af. Lebron heldur með Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið

Leikmaður Arsenal ekki að spila nóg til að komast í landsliðið
433Sport
Í gær

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“
433Sport
Í gær

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu

Svarar fyrir dónaleg skilaboð sem hún á að hafa sent á mann sem er í sambandi með samstarfskonu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tuchel útskýrir óvænt val í enska landsliðshópinn – Fékk góð meðmæli

Tuchel útskýrir óvænt val í enska landsliðshópinn – Fékk góð meðmæli