

Bolton tók á móti Bristol City í ensku Championship deildinni í kvöld en leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna.
Það var Sammy Ameobi sem skoraði eina mark leiksins á 71. mínútu og niðurstaðan því 1-0 sigur Bolton.
Hörður Björgvin Magnússon byrjaði á bekknum hjá Bristol í kvöld en kom inná á 65. mínútu fyrir Jamie Paterson.
Bristol er í fimmta sæti deildarinnar með 51 stig, 3 stigum frá Derby sem er í öðru sæti deildarinnar.