Skráðum bílaleigubílum fjölgað mikið milli ára og eru ríflega 21 þúsund í dag – Stærstu fyrirtækin velta milljörðum


Skráðum bílaleigubílum á Íslandi í dag hefur fjölgað um 4.440 milli ára og eru þeir í dag 21.700. Algengt leiguverð á hefðbundnum fólksbíl í viku yfir sumartímann er í dag á bilinu 70 til 120 þúsund krónur. Stærstu bílaleigur landsins velta milljörðum króna á ári.
Ljóst er að sá metfjöldi ferðamanna sem vænst er að sæki Ísland heim í sumar og ár mun geta valið úr fleiri bílum en áður. Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu hefur skráðum bílaleigubílum fjölgað umtalsvert frá því á sama tíma í fyrra. Í umfjöllun DV í júní í fyrra kom fram að skráðir bílaleigubílar þá væru 17.260, en þar af væru 16.358 í umferð og á númerum. Árið 2014 var heildarfjöldi skráðra bílaleigubíla 14.841.
Í dag er fjöldi skráðra bílaleigubíla 21.700, þar af 20.398 í umferð og á númerum. Fjölgað hefur í bílaleigubílaflota Íslands um 4.440 bíla milli ára, og um 4.040 bíla ef litið er til þeirra sem eru á númerum. Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra voru nýskráðir 14.004 bílar á Íslandi, þar af var talsverður hluti bílaleigubílar.
Samkvæmt farþegaspá Isavia fyrir árið í ár er gert ráð fyrir að erlendir ferðamenn verði rúmlega 1,7 milljónir í ár, eða hálfri milljón fleiri en í fyrra, þegar hingað komu ríflega 1,2 milljónir ferðamanna. Þessi aukning á ferðamönnum hefur skilað sér til þjónustuaðila ferðaþjónustunnar sem notið hafa góðs af. DV greindi frá því í desember síðastliðnum að tvær stærstu bílaleigur landsins, Höldur ehf., sem rekur Bílaleigu Akureyrar, og ALP hf., sem rekur Avis og Budget, hafi velt rúmum 7,1 milljarði króna árið 2014. Það ár voru samanlagðar árstekjur þeirra þremur milljörðum króna hærri en árið 2010. Ársreikningar félaganna fyrir síðasta ár hafa ekki verið birtir en ljóst er að mikil umsvif eru í bílaleigumarkaðnum hérlendis.
„Sumarið lítur mjög vel út og búið að ganga vel í vor. Við höfum verið að stækka, breyta og bæta okkar innviði þannig að við séum klárir í slaginn í sumar. Það lítur vel út,“ segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, sem um árabil hefur verið ein sú umsvifamesta hér á landi með bílaflota sem telur um 4 þúsund bifreiðar. Steingrímur segir ýmislegt skýra fjölgun í skráðum bílaleigubílum milli ára. Meðal annars að margar af stærri bílaleigum landsins hafi keypt bíla um síðustu áramót út af vörugjaldabreytingum þar sem fyrirtæki voru að sögn Steingríms að lágmarka skaða af breytingum sem þá urðu.
„Þannig að við vorum að kaupa bíla sem við erum vanalega að taka inn í maí og júní. Svo erum við að taka bílana fyrr í gagnið núna. Hjá okkur erum við með fleiri bíla á skrá núna en á sama tíma í fyrra og það verður aukning um einhverja 200 bíla í sumar, sem er svo sem ekki hátt í prósentum.“
Aðspurður segir Steingrímur að bílaleigum hafi ekki verið að fjölga mikið, enda verið ansi margar fyrir. Smærri aðilar hafi hins vegar verið að stækka meira en stærri aðilarnir og bendir á að hlutdeild Bílaleigu Akureyrar í heildarmarkaðnum hafi farið minnkandi undanfarin ár.
Annað sem Steingrímur bendir á er að vitað sé að inni í heildartölu Samgöngustofu séu rangt skráðir bílar. Það er, bílaleigubílar sem búið er að selja en láðst hefur að afskrá sem bílaleigubíla í almenna notkun. Áætlað sé að það kunni að vera allt að 2.500 bílar, en unnið sé að því að leiðrétta þá skekkju.
Erfitt er að meta hvernig nýtingarhlutfall bílaleigubíla verði hjá helstu fyrirtækjunum í sumar. En Steingrímur segir að hún verði góð í sumar. Hún geti auðvitað aldrei orðið 100%, en það sem draga muni úr er að gisting hafi ekki vaxið í samræmi við fjölgun ferðamanna.
„Eins og ég les markaðinn núna þá verða laus flugsæti og bílaleigubílar en gistingin verður uppbókuð. Það dregur síðan aftur úr aukningu á bílaleigubílum. Ég veit að ferðaþjónustuaðilar eru margir hættir að bóka í júní og júlí því það er allt orðið fullt, þótt við eigum bíla lausa, allavega eitthvað í júní.“
Steingrímur segir að það hafi haft mikið að segja hversu vel hafi tekist að dreifa ferðamannaálaginu betur yfir allt árið. „Vorið og veturinn var gott hjá okkur og þar skiptir mestu máli hvað náðst hefur að dreifa álaginu betur. Við erum klár í slaginn í sumar og það lítur vel út. Nú vonar maður að allir aðrir verði klárir líka.“