fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Í gleði og sorg

Ljósmyndarar EPA fylgdust með gleði og sorg um allan heim yfir páskana

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 31. mars 2016 13:00

Ljósmyndarar EPA fylgdust með gleði og sorg um allan heim yfir páskana

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pílagrímar bera kross síðasta spölinn við Holy Island í Northumbria í Bretlandi. Í 41 ár hafa kristnir menn tekið þátt í ferðalaginu með krossinn yfir bænadagana.
Pílagrímar Pílagrímar bera kross síðasta spölinn við Holy Island í Northumbria í Bretlandi. Í 41 ár hafa kristnir menn tekið þátt í ferðalaginu með krossinn yfir bænadagana.

Mynd: EPA

Starfsfólk sjúkrahúsa, sjúkraflutningamenn, lögreglumenn og slökkviliðsmenn tóku þátt í minningarathöfn fyrir fórnarlömb hryðjuverkanna í Brussel.
Mínútuþögn Starfsfólk sjúkrahúsa, sjúkraflutningamenn, lögreglumenn og slökkviliðsmenn tóku þátt í minningarathöfn fyrir fórnarlömb hryðjuverkanna í Brussel.

Mynd: EPA

Þeir tóku stökkið ungu piltarnir í Maníla á Filippseyjum á páskadag.
Sundsprettur Þeir tóku stökkið ungu piltarnir í Maníla á Filippseyjum á páskadag.

Mynd: EPA

Hér má sjá fólk sem særðist í sjálfsmorðsárásinni í Lahore í Pakistan þann 27. mars síðastliðinn. 70 féllu í árásinni. Fólkið á myndinni er þungt haldið og ættingjar bíða við rúmstokkinn eftir fréttum.
Daginn eftir Hér má sjá fólk sem særðist í sjálfsmorðsárásinni í Lahore í Pakistan þann 27. mars síðastliðinn. 70 féllu í árásinni. Fólkið á myndinni er þungt haldið og ættingjar bíða við rúmstokkinn eftir fréttum.

Mynd: EPA

Eldur braust út á útimarkaði í Osinow Dolny í Norðvestur-Póllandi á mánudag. Átta létust þegar flugeldabás sprakk í loft upp.
Mikið bál Eldur braust út á útimarkaði í Osinow Dolny í Norðvestur-Póllandi á mánudag. Átta létust þegar flugeldabás sprakk í loft upp.

Mynd: EPA

Það var ansi heitt í Kúala Lúmpúr í Malasíu og gott að kæla sig í svalandi vatninu.
Notalegt Það var ansi heitt í Kúala Lúmpúr í Malasíu og gott að kæla sig í svalandi vatninu.

Mynd: EPA

Victoria Topay og börnin hennar sitja fyrir hjá ljósmyndara EPA á heimili þeirra í Monroviu í Líberíu. Stólarnir tákna tvo fjölskyldumeðlimi og eiginmann Victoriu sem létust af völdum ebólu þegar ebólufaraldurinn geisaði í fyrra á þessum slóðum.
Minningin lifir Victoria Topay og börnin hennar sitja fyrir hjá ljósmyndara EPA á heimili þeirra í Monroviu í Líberíu. Stólarnir tákna tvo fjölskyldumeðlimi og eiginmann Victoriu sem létust af völdum ebólu þegar ebólufaraldurinn geisaði í fyrra á þessum slóðum.

Mynd: EPA

Pílagrímar bera kross síðasta spölinn við Holy Island í Northumbria í Bretlandi. Í 41 ár hafa kristnir menn tekið þátt í ferðalaginu með krossinn yfir bænadagana.
Pílagrímar Pílagrímar bera kross síðasta spölinn við Holy Island í Northumbria í Bretlandi. Í 41 ár hafa kristnir menn tekið þátt í ferðalaginu með krossinn yfir bænadagana.

Mynd: EPA

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm
Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð