fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Sælureitur í sveitinni í Mosfellsdal – Viltu eina eign eða tvær?

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. júní 2026 09:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær eignir í miðjum Mosfellsdal eru komnar á sölu. Báðar eru sannkallaður sælureitur í sveitinni þar sem stutt er í alla þjónustu. Eignirnar eru Reykjadalur 3A og 3B og er hægt er að kaupa aðra eignina eða báðar vilji stórfjölskyldan sameinast á einum stað.

Reykjadalur 3B er áhugaverð og öðruvísi eign sem býður upp á mikla möguleika. Ásett verð er 203 milljónir króna

Eignin sem er byggð 1999 og 2018 er 923 fm: gróðurhúsið sjálft er 720fm, inni í því er aðalhúsið 140 fm g sér gestahús 33 fm, samtals 173 fm. Bílskúrinn er 152 fm og bílskýli 51 fm.

Aðalhúsið skiptist í forstofu, stofu með útgengi út á verönd þar sem er heitur pottur og grillaðstaða, eldhús þar sem eru sérsmíðuð húsgögn sem eru í anda hússins, herbergi með en-suite baðherbergi og gestasnyrtingu.

Úr eldhúsi/borðstofu er útgengt gegnum tvöfalda rennihurð út í gróðurhúsið. Glerhúsið býður upp á mikla möguleika á nýtingu hvort sem aðilar vilja taka á móti stórum hópum í veislu, rækta gróður eða undir atvinnustarfsemi. Lóðin er mikið til í gróðri.

Verönd snýr í suður fyrir framan hús með kamínu og flottu pallalögðu útisvæði.

Gestahúsið skiptist í alrými með eldhúskrók og stofu, herbergi og baðherbergi.

Bílskúrinn er 150 fm og 51 fm stórt bílskýli byggt við bílskúrinn fyrir framan aðaldyr.

Gróðurhúsið er hellu- og timburlagt á pöllum, mikið af ýmiss konar trjám og gróðri. Búið að útbúa bar á einum stað, kósý horn á öðrum.

Reykjadalur 3A stendur á fallegri lóð við Reykjadalsafleggjara í Mosfellsdal. Ásett verð er 285 milljónir króna.

Eignin sem er byggð á árunum 2018-2026 er 454,6 fm og samanstendur af  231,7 fm íbúðarhúsi, 85,9 fm auka íbúð/gestahúsi og 137 fm bílskúr og geymslu.

Íbúðarhúsið skiptist í forstofu með þvottahúsi inn af og sérútgangi, gestasalerni, alrými með eldhúsi, þar sem heimilistæki eru innbyggð, og stofu með arni. Úr alrýminu er gengið inn í sjónvarpsherbergi. Á efri hæð er herbergi/skrifstofurými.

Á svefnherbergisgangi er gert ráð fyrir stóru hjónaherbergi með sérbaðherbergi og fataherbergi. Úr hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út í garð.

Þá eru þrjú barnaherbergi með millilofti með gluggum. Við enda svefnherbergisgangs er stórt baðherbergi, þaðan er útgengi út í garð og á pall með heitum potti.

Mikill trjágróður er á jörðinni og rennur Suðurá með suðurlóðarmörkum.

Nánari upplýsingar um eignirnar má finna hér og hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe