
Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir félagið ætla að leggja fram risatilboð í stórstjörnu eftir forsetakosningar félagsins um helgina, beri hann sigur úr býtum.
Perez sagði í spænskum fjölmiðlum að Real Madrid myndi bjóða að minnsta kosti 150 milljónir evra í leikmann „af sama kalíberi og Cristiano Ronaldo eða Kaka“.
Forsetinn útilokaði þó að um leikmenn eins og Erling Braut Haaland, Harry Kane eða Michael Olise væri að ræða.

Samkvæmt spænskum miðlum er líklegast að um sé að ræða Vitinha hjá Paris Saint-Germain.
Blaðamaðurinn Edu Pidal fullyrðir að portúgalski miðjumaðurinn verði skotmark Real Madrid í sumar.
Vitinha var lykilmaður í liði PSG á síðustu leiktíð og er metinn á um 140 milljónir evra samkvæmt Transfermarkt, svo það gæti passað við upphæðina sem Perez nefnir.
Leikmaðurinn sjálfur sagði þó fyrr á árinu að það yrði hreinlega heimskulegt að yfirgefa PSG á þessum tímapunkti.