fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Pressan

Sögðu drengjunum að þetta væri leikur áður en þau skildu þá eftir eina úti í skógi og fóru

Pressan
Þriðjudaginn 26. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir ungir franskir drengir fundust grátandi og yfirgefnir í skóglendi í Portúgal á þriðjudag í síðustu viku eftir að foreldrar þeirra skildu þá eftir eina undir því yfirskini að þeir væru að taka þátt í leik. Málið hefur vakið mikinn óhug í Frakklandi og Portúgal.

Drengirnir, sem eru fimm og fjögurra ára gamlir, fundust 19. maí á afskekktum vegi milli bæjanna Alcácer do Sal og Comporta, um hundrað kílómetra suður af Lissabon. Þeir voru með bakpoka sem innihélt vatn og mat.

Hjón á ferð um svæðið fundu drengina grátandi og í miklu uppnámi og sögðu síðar að börnin hefðu kallað ákaft á föður sinn.

Samkvæmt framburði drengjanna höfðu móðir þeirra, hin 41 árs gamla Marine Rousseau, og sambýlismaður hennar Marc Ballabriga, 55 ára fyrrverandi lögreglumaður, bundið fyrir augu þeirra og farið með þá inn í skóg.

Þar hafi þeim verið sagt að þeir væru að taka þátt í leik „til að reka burt djöfulinn“ þar sem þeir áttu meðal annars að finna hníf sem hefði verið grafinn í jörðu. Þegar eldri drengurinn tók bindið af augunum kom í ljós að foreldrarnir voru horfnir.

Drengirnir ráfuðu síðan um svæðið í margar klukkustundir í allt að 30 stiga hita áður en þeir fundust. Þeir voru skítugir og hafði annar þeirrai meitt sig á hné, en þess utan reyndust þeir ómeiddir við skoðun á sjúkrahúsi. Þá leiddi eiturefnapróf í ljós að þeim hafði ekki verið byrluð nein lyf.

Portúgölska lögreglan handtók móðurina og sambýlismann hennar tveimur dögum síðar á kaffihúsi í bænum Fátima. Þau voru færð fyrir dóm í handjárnum og úrskurðuð í gæsluvarðhald. Bæði sæta rannsókn fyrir að hafa stofnað börnunum í hættu og yfirgefið þau, en maðurinn er jafnframt grunaður um líkamsárás.

Faðir drengjanna hefur nú stigið fram opinberlega í fyrsta sinn frá því málið kom upp. Hann segir að hann muni ekki verja gjörðir móðurinnar, en að sama skapi ekki taka þátt í hörðum árásum gegn móðurinni sem hafa verið áberandi í netheimum. Hann segir að börnin þurfi frið til að byggja líf sitt upp á ný.

„Börnin mín þurfa ekki að vera stöðugt minnt á þennan harmleik,“ sagði hann í viðtali við franska fjölmiðla.

Í frétt CNN Portugal er rætt við barnasálfræðinginn Melanie Tavares sem segir viðbúið að atvikið muni hafa langvarandi áhrif á drengina. Þeir muni líklega glíma við óöryggi, svefntruflanir og aðskilnaðarkvíða sem nauðsynlegt er að vinna með. „Þetta er áfall sem fylgir þeim alla ævi,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum
Pressan
Í gær

Svona lengi á fólk að sofa á hverri nóttu miðað við aldur

Svona lengi á fólk að sofa á hverri nóttu miðað við aldur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár