fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
433Sport

Tómas með eldræðu í beinni eftir atburði vikunnar – „Þetta er svo ógeðslega heimskulegt“

433
Laugardaginn 23. maí 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.

Southampton var hent úr umspili ensku B-deildarinnar fyrir að njósna um æfinguy Middlesbrough í aðdraganda einvígis liðanna í undanúrslitum.

„Þetta er svo ógeðslega heimskulegt. Það er til Wyscout og allir leikir eru til á teipi. Hvað ætlarðu að fá út úr því að senda einhvern gaur með myndavél og hlerunarbúnað, þó þú vitir byrjunarliðið, hvað ætlarðu að fá út úr því,“ sagði Tómas.

video
play-sharp-fill

Souhtampton vann leikinn við Boro en ekki fyrri leikinn, sem var spilaður eftir njósnirnar umtöluðu.

„Þeir hafa gert þetta þrisvar núna en ekki unnið einn af þessum leikjum,“ sagði Tómas.

„Ímyndið ykkur fjárhagslegu hagsmunina sem eru þarna undir, þetta er yfirgengilegt,“ sagði Björn, en miklir peningar eru í boði fyrir lið og leikmenn sem fara upp í úrvalsdeildina.

„Það má færa rök fyrir því að þetta hefði getað orðið þyngsta fjárhagslega refsing sem félag hefur fengið,“ sagði Helgi.

Þeir félagar voru sammála um að refsingin væri ívið of hörð, en Southampton mun jafnframt hefja næstu leiktíð með fjögur stig í mínus.

„Menn liggja rotaðir í jörðinni og þá er sparkað í punginn líka,“ sagði Björn léttur.

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arne Slot segir að það breyti plönum Liverpool ef allt fer á versta veg um helgina

Arne Slot segir að það breyti plönum Liverpool ef allt fer á versta veg um helgina
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fullyrða að United stefni á að kaupa þessa tvo miðjumenn

Fullyrða að United stefni á að kaupa þessa tvo miðjumenn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fullyrt að Liverpool hafi haft samband við Klopp – Verður Slot rekinn eftir helgi?

Fullyrt að Liverpool hafi haft samband við Klopp – Verður Slot rekinn eftir helgi?
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Allur ágóðinn af stórtónleikum Luigi mun renna til Ingvars og fjölskyldu hans

Allur ágóðinn af stórtónleikum Luigi mun renna til Ingvars og fjölskyldu hans
433Sport
Í gær

Útskýrir af hverju hann er að fara frítt frá City í sumar

Útskýrir af hverju hann er að fara frítt frá City í sumar
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Bjössi Þorfinns og Tommi Steindórs – Gleði í Grindavík og norðurhluta Lundúna

Íþróttavikan: Bjössi Þorfinns og Tommi Steindórs – Gleði í Grindavík og norðurhluta Lundúna
Hide picture