

Cristiano Ronaldo bætti enn einum titlinum í safnið þegar Al Nassr tryggði sér sigur í sádiarabísku úrvalsdeildinni á lokadegi tímabilsins. Ronaldo brast í grát þegar allt var í höfn.
Al Nassr lagði Damac í úrslitaleik tímabilsins og Ronaldo átti stórleik þar sem hann skoraði tvö mörk og leiddi lið sitt til sigurs. Þetta er fyrsti opinberi titill hans með félaginu frá því hann gekk í raðir þess árið 2022.
Með sigrinum hefur Ronaldo nú unnið alls 36 titla á ferlinum og heldur áfram að styrkja stöðu sína sem einn sigursælasti leikmaður knattspyrnusögunnar.
Cristiano Ronaldo at full time. 🥹🎥@Rtiban1 pic.twitter.com/8zhZRFSe1Y
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 21, 2026
Portúgalinn hefur nú unnið titla með öllum þeim félögum sem hann hefur leikið fyrir. Hann hóf ferilinn hjá Sporting, vann fjölda titla með Manchester United og náði sínum stærsta árangri með Real Madrid.