

El Hadji Diouf hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa ekki greitt meðlag.
Fyrrum framherji Liverpool var dreginn fyrir dómstóla af fyrrverandi eiginkonu sinni, Valerie Bishop, vegna vangoldinna greiðslna.
Dómurinn féll nýlega þar sem Diouf, 45 ára, fékk eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm og var jafnframt gert að greiða um 13 þúsund pund í vangoldið meðlag.
Við skilnað þeirra árið 2023 fékk Bishop forræði yfir dóttur þeirra og var Diouf gert að greiða mánaðarlegt meðlag auk þess að standa straum af skóla- og lækniskostnaði.
Samkvæmt málinu hafði hann hins vegar ekki greitt frá mars 2024.
Málið hefur vakið athygli enda Diouf þekktur fyrir feril sinn í ensku úrvalsdeildinni og með landsliði Senegal.
Þetta er enn eitt áfallið fyrir fyrrum knattspyrnumanninn utan vallar.