

Chelsea hefur gengið til samstarfs við Roc Nation, fyrirtæki rapparans Jay-Z, í því skyni að styrkja stöðu sína á bandaríska markaðnum.
Samstarfið er við Roc Nation Sports International, sem sérhæfir sig í markaðssetningu og ráðgjöf í íþróttaheiminum. Markmiðið er að auka sýnileika Chelsea í bandarískri poppmenningu með því að tengja félagið við tónlist, afþreyingu og aðra menningarstrauma.
Roc Nation hefur þegar unnið með fjölda stórra leikmanna, þar á meðal Vinícius Júnior, Endrick og Gabriel Martinelli, auk þess að veita félögum á borð við Como, Burnley og Marseille ráðgjöf.
Vonast er til að samstarfið skili sér í nýjum markaðsherferðum, efni fyrir samfélagsmiðla og viðburðum sem höfða sérstaklega til bandarískra stuðningsmanna.
Chelsea hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á alþjóðlega markaði og er þetta skref liður í þeirri stefnu að efla vörumerki félagsins utan Evrópu.