fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Hafnfirðingar ausa úr skálum reiði sinnar eftir atburði dagsins – „Hvenær ætla menn að grípa inni í og stöðva þetta rugl?“

433
Fimmtudaginn 14. maí 2026 17:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH-ingar eru vægast sagt ósáttir við karlalið sitt eftir 5-0 tap gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag.

Það hefur ekkert gengið hjá FH í deildinni, en liðið er með tvö stig eftir sex leiki þar. Leikur dagsins bætti svo ekki úr skák.

Jóhannes Karl Guðjónsson tók við liði FH í vetur af Heimi Guðjónssyni, sem er einmitt þjálfari Fylkis og pakkaði sínu gamla liði saman í dag. Ákvörðun FH um að framlengja ekki samning Heimis, sem hefur gert stórkostlega hluti með liðið í gegnum tíðina, var umdeild.

„Hvenær ætla menn að grípa inni í og stöðva þetta rugl sem er í gangi undir stjórn Jóa Kalla, sem var tekinn í kennslustund af HG frá a-ö. Hrein hörmung og með verri úrslitum í sögu Fimeikafélaginu,“ skrifaði Guðmundur Hilmarsson, blaðamaður og fyrrum leikmaður FH á X.

Sigurður Gísli Bond Snorrason, annar fyrrum leikmaður liðsins og hlaðvarpsstjarna, lét einnig í sér heyra.

„Myndi maður ekki bara hætta í fótbolta ef maður væri inná hjá FH að tapa 4-0 fyrir Fylki á 46 mín, þvílíkur brandari,“ skrifaði hann.

„Jói Kalli stútaði ÍA á sínum tíma og er hann að gera það sama aftur núna nema í smá samvinnu með Davíð Þór,“ skrifaði FH-ingurinn og sparkspekingurinn Magnús Haukur Harðarson þá harðorður.

Fleiri tóku til máls, eins og sjá má hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Konurnar taka við af körlunum um helgina

Konurnar taka við af körlunum um helgina
433Sport
Í gær

U-beygja og hann tekur sennilega aftur við fyrir HM

U-beygja og hann tekur sennilega aftur við fyrir HM
433Sport
Í gær

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid
433Sport
Í gær

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum