
Reynsla úr nýlegum geimferðum, þar á meðal Artemis-áætluninni, hefur aftur beint sjónunum að heilsufarslegum afleiðingum geimferða en þær eru miklu meiri en það sem við upplifum hér á jörðinni.
Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir að fimm helstu áhættuþættirnir við mannaðar geimferðir séu: geislar, einangrun og innilokun, fjarlægðin frá jörðinni, breytingar á þyngdaraflinu og vera í lokuðu og hugsanlega óvinveittu umhverfi. Þessar aðstæður hafa áhrif á starfsemi líkamans og andlegt ástand geimfaranna.
Eitt af því sem mest er vitað um eru þau áhrif sem geimferðir hafa á bein og vöðva. Í þyngdarleysi missir líkaminn vöðvamassa hratt því beinagrindin er ekki útsett fyrir sama álagi og venjulega. NASA telur að geimfarar missi á milli 1 og 1,5% af beinþéttleika sínum á mánuði í geimferðum sem vara í marga mánuði.
Á sama tíma veikjast vöðvarnir og blóðrásin breytist, sem getur valdið lægri blóðþrýstingi og aukið hættuna á hjartsláttartruflunum.
Þyngdarleysið hefur einnig áhrif á vökvadreifingu líkamans. Vökvi færist upp í efri hluta líkamans og höfuðið og það getur breytt þrýstingnum í heilanum og haft áhrif á sjónina.
Meira að segja skammvinn dvöl í geimnum getur gert fólk áttavillt og geimveikt, sérstaklega þegar líkaminn þarf að venjast nýju þyngdarafli. Í lengri ferðum verða áhrifin meiri og þess vegna lengd geimferða afgerandi fyrir hversu alvarlegar líkamlegar breytingar verða.
Daglegt líf í geimnum er mjög ólíkt lífinu á jörðinni. Geimfarar í Alþjóðlegu geimstöðinni upplifa allt að 16 sólarupprásir á sólarhring og það hefur áhrif á dægurryþmann og getur haft áhrif á svefngæðin.
Mataræðið þarf að uppfylla sérstakar kröfur. Matvælin þurfa að endast lengi og vera næringarrík og þau verða að vinna gegn neikvæðum áhrifum þyngdarleysis, meðal annars rýrnun beinanna.
Andlegt álag er síðan stór þáttur. Einangrun, fjarlægð frá fjölskyldunni og stöðugt starfsálag geta aukið stress, kvíða og valdið lélegum móral. Þess vegna vinna geimferðastofnanir stöðugt að því að styrkja andlega heilsu geimfara með föstum rútínum, hreyfingu og sambandi við umheiminn.