

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Arsenal er nýkrýndur Englandsmeistari en liðið og stjórinn Mikel Arteta hafa ekki notið mikilla vinsælda á meðal hlutlausra knattspyrnuáhugamanna.
Tómas telur að þetta geti verið þar sem liðið hefur ekki spilað mjög aðlagandi fótbolta í vetur og einnig þar sem einfaldlega er kalt á toppnum. Björn telur breytt landslag í fjölmiðlum einnig spila inn í.
„Ég held að þetta sé að einhverju leyti út af því hvernig landslagið hefur breyst með hlaðvörpum og samfélagsmiðlum. Það eru allir og amma þeirra með skoðun. Henni er útvarpað út í eitt,“ sagði hann.
„Það kemur ein umræða fram og svo er hún tekin út í gegn og endurómuð út í gegn. Þessi naratíva að Arsenal séu hundleiðinlegir og þetta er nánast komið út í það að menn séu óheiðarlegir, það eigi að stjörnumerkja titilinn. Það er bara dæmi um það sem gerjast í samfélagsmiðlum og öðru.
Mourinho-liðin hefðu sennilega verið í hakkavélinni ef það hefði verið eins umhverfi,“ sagði hann enn fremur.
Nánar í spilaranum.