
Hármissir á haustin getur verið afleiðing erfðafræðilegra þátta en yfirleitt er engin ástæða til að hafa áhyggjur. Stress eða hormónabreytingar geta einnig verið ástæðan fyrir að hárið dettur af.
GEO.de segir að við missum 70 til 100 hár á degi hverjum og það er algjörlega eðlilegt. Í flestum tilfellum byrjar hárið að vaxa aftur eftir um þrjá mánuði þegar hringrás hárvaxtarins kemst í jafnvægi.
Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn hártapi eru betri en meðferð. Hollt og næringarríkt mataræði getur styrkt hárið og dregið úr hármissi.
Ef þú missir meira en 100 hár á dag eða ef hárið dettur af ákveðnu svæði, þá ættirðu að hafa samband við sérfræðing segir Focus og bendir á að þá geti ástæðan verið undirliggjandi sjúkdómur eða hormónaójafnvægi.
GEO segir að tveir vinsælir drykkir geti örvað hárvöxtinn og unnið gegn hármissi og þú þarft ekki einu sinni að drekka þá til þeir hafi áhrif á þig.
Kaffi lætur hárið vaxa – Þessi vinsæli koffíndrykkur örvar ekki bara skapið heldur einnig hárvöxtinn. Kaffi inniheldur mikilvæg steinefni á borð við kalsíum og magnesíum sem styðja við hárvöxtinn. Koffínið eykur einnig blóðflæðið í hársverðinum.
Mörg sjampó innihalda koffín en það er líka hægt að nota venjulegt kaffi sem áburð á hárið. Mælt er með notkun nýmalaðs kaffis.
Helltu upp á kaffið, láttu það kólna svo það brenni ekki húðina, og nuddaðu því beint í hársvörðinn. Nuddaðu það varlega inn í hársvörðinn og láttu það liggja í nokkrar mínútur og skolaðu höfuðið síðan vel.
Focus segir að þetta þurfi að endurtaka minnst einu sinni í mánuði til að ná sem bestum árangri.
Bjór styrkir hárið – Mikilvægustu efnin í bjór eru vatn, malt og humlar. Bjór inniheldur mörg vítamín og steinefni sem styrkja hárið og vöxt þess.
Margar hárvörur byggjast á eiginleikum bjórs. Þegar þú velur bjór til að styrkja hárið, ættirðu að velja bjór með miklu magni humla því þeir vinna gegn hármissi. Alkóhólinnihaldið ætti að vera lítið, helst undir fimm prósentum, til að hlífa hárrótunum.
Ef þú notar bjór á hárið þá skaltu hella honum yfir það og láta liggja í um 15 mínútur áður en þú skolar hann í burtu. Þetta má þó ekki gera of oft því of mikið alkóhól getur þurrkað hársvörðinn og skaðað hársræturnar með því að gera hársvörðinn of súran.