

Daniel Levy, fyrrum stjórnarformaður Tottenham, hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um erfiða stöðu félagsins í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
Levy lét af störfum hjá Tottenham í september eftir tæplega 25 ár við stjórnvölinn hjá félaginu. Síðan þá hefur tímabil Spurs farið verulega úr böndunum og liðið berst nú fyrir lífi sínu í deildinni undir stjórn Roberto De Zerbi.
Eftir að hafa tekið við CBE-heiðursviðurkenningu í Buckingham-höll ræddi Levy við Sky Sports um stöðu mála hjá félaginu.
„Það eina sem ég hugsa um núna er að Tottenham haldi sæti sínu í úrvalsdeildinni,“ sagði Levy.
„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér þessa stöðu í byrjun tímabils. Þetta eru auðvitað gríðarleg vonbrigði, en við verðum að horfa fram á veginn og vona að félagið verði áfram í deildinni.“
Levy viðurkenndi jafnframt að hann fyndi sterkt fyrir stöðu félagsins þrátt fyrir að vera ekki lengur við stjórnvölinn.
„Ég finn fyrir sársaukanum, en ég er bjartsýnn á að við komumst í gegnum þetta,“ sagði hann.