
Brúðkaupsdagurinn á að vera eftirminnilegur. Minningarnar um þennan dag ættu eðlilega að einkennast af gleði og ást, en það gerðist ekki hjá þeim James Shirah og Savahna Collier sem gengu í hjónaband í ágúst árið 2024. Dagurinn fór fram með eðlilegum hætti en eftir að veislan var búin var draumurinn á enda og martröðin tók við. Svaramaðurinn lét lífið eftir að hann lenti undir jeppa sem var ekið á hann á fleygiferð. Ökumaður bifreiðarinnar var besti vinur svaramannsins, brúðguminn sjálfur, James Shirah, sem nú hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir manndráp.
Sjálfur segir James að um slys hafi verið að ræða. Ákæruvaldið var þó ekki á sama máli. Fyrr um kvöldið höfðu vinirnir rifist og hafði Shirah ekið á brott en sneri svo aftur á mikilli ferð og ók vin sinn niður. Terry Taylor Jr. var alvarlega slasaður þegar hann var fluttur á sjúkrahúsið þar sem hann svo lést skömmu síðar.
Fyrir dómi lýsti Shirah yfir mikill eftirsjá. „Það eina sem ég get gert það sem ég á eftir ólifað er að biðjast afsökunar og lýsa yfir eftirsjá minni. Ég mun sjá eftir þessu út lífið.“
„Herra Shirah, ég tel þig ekki vera glæpamann. Þú ert þó morðingi,“ sagði dómarinn í málinu og virtist þannig fallast á að um óviljaverk hafi verið að ræða. Eiginkona Shirah á svo einnig yfir höfði sér fangelsisrefsingu fyrir hlutdeild að manndrápinu.
Sjá einnig:Brúðkaupshörmungar – Brúðguminn drap svaramanninn