fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
433Sport

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 12. maí 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal hefur orðið fyrir miklu áfalli fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Paris Saint-Germain eftir að Ben White meiddist í sigri liðsins gegn West Ham um helgina.

Samkvæmt enskum miðlum er talið að White hafi orðið fyrir meiðslum á liðböndum í hné og verði frá keppni út tímabilið. Varnarmaðurinn sást yfirgefa London Stadium með spelku á hnénu eftir leikinn þar sem Arsenal vann mikilvægan 1-0 sigur í titilbaráttunni.
White þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik eftir samstuð við Crysensio Summerville. Meiðslin gætu einnig sett þátttöku hans á heimsmeistaramótinu í sumar í hættu samkvæmt fréttum á Englandi.

Mikel Arteta stendur nú frammi fyrir erfiðri stöðu í varnarlínunni þar sem Jurrien Timber er einnig frá vegna meiðsla. White hefur verið lykilmaður hjá Arsenal undanfarnar vikur og byrjaði meðal annars í báðum undanúrslitaleikjunum gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni.

Hinn 28 ára gamli White hefur glímt við hnévandamál áður og Arsenal óttast nú að meiðslin séu alvarlegri en fyrst var talið.

Fjarvera hans gæti reynst Arsenal dýrkeypt í stærsta leik félagsins í Evrópu í mörg ár þegar liðið mætir PSG í úrslitaleiknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

United horfir til Real Madrid og klárir í slaginn ef hann er til sölu

United horfir til Real Madrid og klárir í slaginn ef hann er til sölu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hetja helgarinnar í vandræðum í einkalífinu – Eiginkonan eyðir öllum ummerkjum um hjónaband þeirra

Hetja helgarinnar í vandræðum í einkalífinu – Eiginkonan eyðir öllum ummerkjum um hjónaband þeirra
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Innbrotsþjófur með hníf ógnaði fjölskyldunni og hafði mikil verðmæti á brott

Innbrotsþjófur með hníf ógnaði fjölskyldunni og hafði mikil verðmæti á brott
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tottenham fékk aðeins stig á heimavelli – Gæti reynst mikilvægt

Tottenham fékk aðeins stig á heimavelli – Gæti reynst mikilvægt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stuðningsmenn Arsenal telja sig vita af hverju Gyokeres hafi fundið taktinn

Stuðningsmenn Arsenal telja sig vita af hverju Gyokeres hafi fundið taktinn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þarf að taka sér frí frá störfum eftir lífsnauðsynlega aðgerð

Þarf að taka sér frí frá störfum eftir lífsnauðsynlega aðgerð