

Jermaine Jenas, fyrrum landsliðsmaður Englands og fyrrverandi sjónvarpsmaður hjá BBC, er sagður hafa fundið ástina á ný eftir erfiðan tíma í einkalífinu á síðasta ári.
Samkvæmt breskum miðlum hefur hinn 43 ára gamli Jenas verið í sambandi undanfarna sex mánuði með franskri konu að nafni Anne, sem er 31 árs og starfar í fasteignageiranum í París. Heimildarmenn segja að parið hafi haldið sambandinu að mestu leyndu en að Jenas hafi eytt æ meiri tíma í Frakklandi síðustu mánuði.

Á síðasta ári kom fram að Jenas og eiginkona hans Ellie Penfold hefðu skilið eftir sextán ára hjónaband. Saman eiga þau þrjú börn en Jenas á einnig eitt barn úr fyrra sambandi.
Skilnaðurinn kom skömmu eftir að Jenas var rekinn frá BBC þar sem hann starfaði meðal annars sem sérfræðingur í Match of the Day og þáttastjórnandi í The One Show. Ástæðan voru óviðeigandi skilaboð sem hann hafði sent samstarfskonum sínum.
Vinir Jenas segja að hann virðist mun hamingjusamari núna og að sambandið við Anne sé orðið alvarlegt. Hún hafi heimsótt hann í London en Jenas sjálfur eyði nú reglulega tíma í París þar sem þau hittast.