fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Pressan

Rannsókn á andláti 11 ára drengs tók óhugnanlega stefnu

Pressan
Miðvikudaginn 13. maí 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjón í Utah í Bandaríkjunum hafa verið handtekin í tengslum við andlát 11 ára sonar síns á síðasta ári.

Upphaflega var talið að drengurinn hefði svipt sig lífi en rannsókn málsins hefur leitt ýmislegt óhugnanlegt í ljós og telur lögregla að drengurinn hafi verið beittur langvarandi ofbeldi sem og önnur börn á heimilinu.

People greinir frá því að hjónin, Brigham Merrell og Melinda Merrell, hafi verið handtekin á dögunum vegna málsins, en drengurinn lést í september á síðasta ári á heimili fjölskyldunnar í Tremonton í Utah.

Lögregla var kölluð að heimilinu þann 21. september eftir að tilkynning barst um meðvitundarlaust barn. Sjúkraflutningamenn reyndu endurlífgun á vettvangi áður en drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Samkvæmt lögreglu sagði faðirinn í neyðarlínusímtali að hann hefði komið að syni sínum eftir að hann hafði hengt sig. Við rannsókn málsins komu þó fram atriði sem vöktu grunsemdir lögreglu.

Í gögnum sem People hefur undir höndum kemur fram að lögreglumenn sem komu fyrstir á vettvang hafi fundið föðurinn krjúpandi við hlið barnsins án þess að framkvæma endurlífgun, þrátt fyrir að hann hefði sagst vera að því.

Þá sýni upptökur úr eftirlitsmyndavélum inni á heimilinu að faðirinn hafi flutt drenginn um húsið á meðan viðbragðsaðilar börðu á dyrnar til að komast inn. Þá hefðu áverkar á drengnum ekki gefið til kynna að hann hefði látist af völdum hengingar.

Lögregla segir rannsóknina hafa leitt í ljós mynstur langvarandi líkamlegs ofbeldis gegn börnunum á heimilinu. Þar á meðal hafi börnunum verið neitað um mat, þau beitt líkamlegum refsingum með beltum og pönnum og látin dvelja í útigerði fyrir hunda þegar þau voru talin hafa hagað sér illa.

Brigham Merrell hefur verið ákærður fyrir manndráp og pyntingar á barni en Melinda Merrell hefur verið ákærð fyrir pyntingar. Ekki liggur fyrir hvort hjónin hafi játað eða neitað sök.

 


Í þessari frétt er fjallað um ofbeldi í nánu sambandi. Verðir þú fyrir ofbeldi í nánu sambandi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Þá má nálgast leiðarvísi fyrir þolendur slíks ofbeldis á vef Neyðarlínunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Enginn mætti til að syrgja Ian Huntley

Enginn mætti til að syrgja Ian Huntley
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir að bíta nemanda

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir að bíta nemanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap