
Nokkuð hefur borið á umfjöllun fjölmiðla um notkun borgarstjóra á innkaupakorti Reykjavíkurborgar á þessu kjörtímabili. RÚV, Morgunblaðið og Sýn hafa reynt að gerra sér mat úr upplýsingum, sem margt bendir til að lekið hafi til þeirra frá Hildi Björnsdóttir, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni, beint eða eftir krókaleiðum.
Fram hefur komið að Hildur óskaði eftir því við borgarritara 23. janúar sl., daginn fyrir prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, að fá afhent yfirlit yfir notkun borgarstjóra á innkaupakorti frá borginni allt yfirstandandi kjörtímabil.
Á kjörtímabilinu hafa setið þrír borgarstjórar en umfjöllun ofangreindra fjölmiðla hefur að mestu beinst að notkun núverandi borgarstjóra, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. Nefnt hefur verið að Dagur B. Eggertsson, sem lengst sat í embætti, notaði sitt kort ekkert og greint frá því að Einar Þorsteinsson, sem sat í rétt rúmlega ár, notaði sitt kort, líkt og Heiða.
Ekki hefur þó verið rýnt í kortanotkun Einars líkt og gert hefur verið gagnvart Heiðu. Hún steig hins vegar strax fram fyrir skjöldu og gerði grein fyrir kortanotkun sinni og svaraði þeim spurningum sem bornar voru upp.
Athygli vekur að fréttastofa RÚV, sem hefur sýnt kortanotkun Heiðu hvað mestan áhuga, virðist engan áhuga hafa á að fjalla um kortanotkun Einars en sem kunnugt er var hann um langt árabil einmitt fréttamaður á RÚV.
Í yfirliti um kortanotkun Einars kemur fram að hann notaði kortið 11 sinnum árið 2024, að því er virðist í fjórum ferðum. Þrjár ferðanna voru til evrusvæðisins, þar af tvær til París, að því er virðist. Ein ferð er til Kaupmannahafnar.
Í morgun sendi Eyjan Einari í tölvupósti á netfang hans hjá Reykjavíkurborg þrjár spurningar vegna kortanotkunar hans. Þær voru eftirfarandi:
Almennt mun vera ætlast til þess að dagpeningar á ferðalögum séu nýttir til að greiða kostnað á borð við hótelgistingu, mat og leigubílaferðir. Þegar þetta er skrifað, kl. 14:30, hafa engin svör borist frá Einari, né heldur staðfesting á að hann hafi móttekið tölvupóstinn. Fimm kortafærslur eru vegna leigubílaferða og þrjár vegna hótelreikninga í París. Hótelreikningarnir vega þyngst í kortanotkun Einars. Athygli vekur að allar þrjár færslurnar vegna hótelreikninga eru í sömu ferðinni, þrjár færslur á tveimur dögum upp á samtals kr. 323.847.
Eyjan hefur heimildir fyrir því að í allavega einni ferð til Parísar hafi eiginkona Einars, Milla Ósk Magnúsdóttir, verið með í för og að hún hafi á þessum tíma verið að vinna að gerð sjónvarpsmyndar um listamanninn Erró, sem er búsettur í París. Þetta hefur ekki fengist staðfest.