fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. maí 2026 15:32

Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík sendi frá sér myndband á TikTok sem nú hefur verið eytt. Myndbandið var að öllu leyti sett saman með gervigreind en í því sást hin myndgerða útgáfa af Guðmundi Inga sjálfum beita myndgerða útgáfu af Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, líkamlegu ofbeldi. Gagnrýnendur myndbandsins sögðu, í kjölfar frétta fjölmiðla af því, það meðal annars bera vott um dómgreindarbrest.

Í myndbandinu birtust ýmis myndskeið og undir niðri hljómaði lag, sem vvar bersýnilega einnig búið til með gervigreind, þar sem Guðmundur Ingi sjálfur var lofaður og fullyrt að hann myndi efna sín loforð og gera breytingar til hins betra í borginni þar sem þau sem setið hefðu við stjórnvölinn hefðu ekki staðið sig í stykkinu. Í myndskeiði var þar sérstaklega vísað til Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra þar sem myndgerðri útgáfu af henni var gefið merki með handabendingum um að hún hafi staðið sig illa.

Í texta lagsins var síðan skotið föstum skotum á Samfylkinguna og sagt að flokkurinn hafi „plan“ sem enginn muni hvað sé en skemmst er að minnst þess að Guðmundur Ingi sóttist eftir sæti á lista Samfylkingarinnar en án árangurs og spruttu af því opinberar deilur. Í textanum var þó einnig Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýndur og sagt að hann sé aðeins að hugsa um gróða fárra en Guðmundur Ingi og Flokkur fólksins myndu beita sér fyrir byggingu ódýrra og hagkvæmra íbúða fyrir almenning.

Barsmíðar

Í myndbandinu sáust sömu myndskeiðin aftur og aftur. Þau voru helst þau að myndgerða útgáfan af Guðmundi Inga sást dansa ýmist einn eða ásamt myndgerðri útgáfu af Ingu Sæland formanni Flokks fólksins og einnig máttu sjá hina fyrrnefndu útgáfu lyfta höndum til himins á meðan skilti með orðum eins og „nýjar íbúðir“ og „mjög ódýrt“ sáust í bakgrunni.

Það myndskeið sem sást hins vegar mest af var þegar hin myndgerða útgáfa af Guðmundi Inga kýldi hina myndgerðu útgáfu af Pétri Marteinssyni nokkrum sinnum í bringuna.

Myndbandið var birt á TikTok-síðu Guðmundar Inga og hafði fengið á annað þúsund áhorfa en á þriðja tug höfðu „lækað“ það. Myndbandið virtist þó ekki hafa vakið neina sérstaka óánægju fyrr en Mbl.is greindi frá tilvist þess og síðan í kjölfarið Heimildin en fréttamenn síðarnefnda miðilsins hafa náð að vista myndbandið og því má enn sjá það þar

Meðal þeirra sem gagnrýndu myndbandið var Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður Pírata í pistli á Facebook:

„Hvað í fjandanum er að gerast í þessari pólitík nú orðið? Það er alls staðar verið að (þykjast) berja mann og annan. Og nei, þetta er ekkert betra en myndbandið hjá Miðflokknum í Mosó – Ef eitthvað er þá er þetta verra þar sem gervigreindin er notuð til þess að koma öðrum frambjóðanda fyrir í auglýsingunni (örugglega án leyfis viðkomandi). Mín vegna þá er þetta klárt rautt spjald. Út af með manninn.“

Smekklegheit og dómgreind

Í athugasemdum við pistil Björns fékk gagnrýnin á myndbandið nokkrar undirtektir:

„Jæja, þetta er nú að verða vandræðalega vitlaust (og ósmekklegt já) allt saman. Skiptir engu hvað gert er til að fá bara clik-bait bull athygli. Ferlega niðurlægjandi fyrir okkur kjósendur finnst mér að/ef forysta viðkomandi framboða hefur þetta álit á okkur að eyða tíma í svona „þvælu-kynningar“ Bara ógeðslega asnalegt að hafa svona litla trú á okkur.“

„Ofbeldisklám í stjórnmálum er svo augljóslega slæmur hlutur sem ætti að varða við lög nú þegar.“

„Ég skil ekki – ofbeldi er ekki sniðugt og fyndið?“

„Fáránlega hallærislegt að nota ofbeldi sem atkvæðabeitu.“

Svanborg Sigmarsdóttir framkvæmdastjóri Viðreisnar sagði myndbandið ekki bera vott um góða dómgreind:

„Hvað er þetta að halda að ofbeldi sé eitthvað fyndið í kosningamyndböndum. Þetta er verulegur dómgreindarbrestur að halda að þetta sé leiðin til að vekja á sér athygli.“

Við deilingu fréttarinnar af myndbandinu á Facebook-síðu Mbl.is eru nokkrir sem gefa til kynna ánægju með tilheyrandi tjáknum en þeir sem skrifa ummæli eru flestir ósáttir:

„Hræðilega hallærislegt og galið í alla staði. Hvert er þetta eiginlega að þróast. Ríða, drepa giftast, grill slagsmál og allskyns rugl sem kemur þessari baráttu ekkert við og gerir lítið úr viðkomandi. Vil sjá meira sett fram af hvernig og hvenær þið ætlið að gera hlutina.“

„Er hægt að vera hallærislegri? Kjánaleg örvænting.“

„Æææ þvílíkur aulaháttur fæ kjánahroll.“

Eins og áður segir hefur myndbandinu verið eytt af TikTok síðu Guðmundar Inga í kjölfar umfjöllunar Mbl.is og Heimildarinnar og gagnrýninnar sem myndbandið fékk.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjónvarpsstjarna rifjar upp hræðilegt bílslys við Varmahlíð þar sem félagi hennar lést – „Ég barðist við sektarkennd“

Sjónvarpsstjarna rifjar upp hræðilegt bílslys við Varmahlíð þar sem félagi hennar lést – „Ég barðist við sektarkennd“
Fréttir
Í gær

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“