

Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ, segir myndband sem sýnir Miðflokksmann kýla pólitískan andstæðing, aðeins vera „sprell“ og „leiklist“. Myndbandið hefur verið harðlega gagnrýnt og Miðflokkurinn hefur nú fjarlægt það af síðunni sinni.
Vísir greindi fyrst frá þessu.
Það voru oddvitar meirihlutaflokkanna, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Samfylkingar, sem stigu fram og fordæmdu myndbandið sem Miðflokkurinn hafði birt á Tiktok síðu sinni. Í myndbandinu má sjá Miðflokksmann berja „libba“ eftir að hafa kosið Miðflokkinn í kosningum.
„Slík framsetning á ekki heima í lýðræðislegri umræðu. Að gera lítið úr ofbeldi eða setja það fram sem eðlileg viðbrögð gagnvart fólki sem hugsar öðruvísi, hefur aðrar pólitískar skoðanir eða lífssýn er bæði ábyrgðarlaust og hættulegt,“ segir í yfirlýsingu oddvitana. Var myndbandið fordæmt harðlega.
„Sumir eru bara of mikil snjókorn fyrir svona mál, við getum ekki stjórnað hugrenningum fólks út í bæ. Það var enginn sleginn. Þetta var leikið, sá sem er að leika þarna er á listanum okkar, þeir eru bara að sprella strákarnir og hafa gaman af lífinu,“ er haft eftir Sveini Óskari í frétt Vísis um málið.
Sveinn Óskar, sem vakti athygli í byrjun janúar þegar hann tók undir með Donald Trump þegar hann ásældist Grænland, segir síðuna ganga út á gleði og það sem sé fyndið. Hann komi sjálfur hins vegar ekki nálægt henni og sé ekki mikið á TikTok.
„Þetta er bara ritskoðun. Þetta er bara Sovét-Ísland í dag. Það má ekki neitt, mátt ekki segja neitt nema þú missir vinnuna. Endalaust verið að kæfa umræðu sem er erfið og fletja hana út. Við getum ekkert stjórnað túlkun einhverra sem eru andstæðingar okkar í pólitík,“ er haft eftir Sveini Óskari.
Umrætt myndband hefur síðan verið fjarlægt af síðu Miðflokksins.