fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 10. maí 2026 10:30

Maðurinn óttaðist hegðun Bilbó litla. Myndir/aðsendar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem keypti hvolp af ræktanda utan HRFÍ varar við því. Hvolpurinn hafi verið alvarlega árásargjarn og var látinn fara fljótlega aftur. Hann hafi nú komist að því að hvolpurinn sé á leiðinni á þriðja heimilið.

„Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum,“ segir maðurinn sem vill ekki láta nafns síns getið.

Kona mannsins hafði fengið áfallastreituröskun og töldu þau hjónin að hvolpur myndi hjálpa henni. Þau höfðu hins vegar enga reynslu af þessum heimi. Í desember spurðust þau fyrir hjá ræktanda á Vesturlandi, konu, og fengu svör um að hún ætti ólofaðan rakka sem hjónin gætu keypt. Fæddan um miðjan desember.

Um var að ræða hund af tegundinni Dachshund, sem stundum eru kallaðir pylsuhundar. Festu þau sér hann og nefndu Bilbó. Fengu þau svo Bilbó afhentan þann 10. febrúar.

Hafði öfug áhrif

En fljótlega komust þau að því að hegðun hvolpsins var ekki alveg eðlileg. Hann var mjög árásargjarn, jafn vel svona pínu lítill.

„Hann vildi stjórna heimilinu. Hann réðist að konunni minni klukkan 2 að nóttu til og beit hana,“ segir maðurinn. „Þessi hundur var alls ekki eðlilegur. Við fórum með hann til viðurkennds hundaþjálfara sem horfði á hann í tvær mínútur og sagði svo að þetta væri ekki eðlilegt.“

Hafði þetta öfug áhrif á fjölskylduna miðað við það sem þetta átti að gera.

„Konan mín fékk áfallastreituröskun og við héldum að þetta myndi hjálpa henni. En það gerði það ekki. Hundurinn var með sitt eigið sólkerfi. Okkur finnst ekki eðlilegt hvernig hann hagaði sér,“ segir maðurinn.

Eins og andsetinn

Annað fólk sem þau þekkja og hafa reynslu af hundum hafi verið sama sinnis. Þau hafi ekkert skilið í skapgerð hundsins. Það væri eins og hundurinn væri andsetinn af djöfli.

Höfðu þau fljótlega samband við ræktandann aftur sem seldi hundinn áfram. Vildi ræktandinn ekki láta vita hvert hundurinn fór en maðurinn komst svo seinna að því. Það er til fjölskyldu sem gafst fljótlega á honum aftur og seldi hann til þriðju fjölskyldunnar.

Með ættbók horfins félags

Maðurinn varar fólk við að kaupa hvolpa af ræktendum sem eru ekki í félaginu. Bilbó hafi fengið ættbók frá félagi sem hafi hætt starfsemi árið 2023 vegna gjaldþrots.

„Ættbókin er einskis virði því hún er ekki innan Hundaræktunarfélags Íslands,“ segir hann.

Ekki afhuga hundum

Þá hafi hann grunað að ræktandinn hafi ætlað að maka krókinn og óttast um aðstöðuna.

„Ég fór þrisvar sinnum að skoða þennan hvolp. Við fengum aldrei að sjá nema bara í stofuna. Hún náði í eitt dýr og svo heyrðum við hina gelta eins og soltna kjölturakka,“ segir hann.

Þrátt fyrir þessa reynslu eru hjónin ekki afhuga þeirri hugmynd að eignast hund.

„Við erum núna að fá hund en frá ræktanda sem er innan HRFÍ,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni