

„Þið trúið ekki hvað gerðist. Það er blóð í nærbuxunum. Ég er í sjokki“
Þannig byrjar Katrín Edda Þorsteinsdóttir verkfræðingur myndband sitt á Instagram, en hún segir túrblóð og útferð ekki tabú. Katrín Edda er þekkt fyrir að vera opin og einlæg á samfélagsmiðlum, en um er að ræða fyrstu blæðingar hennar án hormóna síðan hún var unglingur. Á morgun verður Katrín Edda 37 ára.
„Helmingurinn af heiminum blæðir úr leggöngunum og því væri bull að skrifa „trigger warning“ um jafn eðlilegan hlut. Og þess vegna finnst mér mjög eðlilegt (og gaman) að deila því á samfélagsmiðlum að ég var að byrja á blæðingum (!!!) í fyrsta sinn án hormóna síðan ég var unglingur! Ég er enn í sjokki og veit eiginlega ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig.“
Katrín Edda segist í myndbandinu áður hafa talað um gyllinæð, sveppasýkingar, útferð og ætti því alveg að geta talað um blæðingar.
Katrín Edda segir að kvensjúkdómalæknir hennar hafi sagt henni að ef hún byrjaði ekki á blæðingum þyrfti hún að taka inn hormón einhvern veginn (pilla/lykkja) því annars myndu líkur á legslímhúðarkrabbameini aukast.
View this post on Instagram
Katrín Edda sem er gift tveggja barna móðir segir að það hafi verið það síðasta sem hún vildi gera.
„Það seinasta sem mig langar að gera er að taka inn fleiri hormón eftir öll hormónin sem ég hef sett í líkamann minn til þess að verða mamma svo ég ákvað að prófa aftur að byrja að taka inn Inositol fyrir sirka mánuði, en það er náttúrulegt bætiefni sem hefur hjálpað konum með PCOS. Ég tók það líka í ár þegar ég var að reyna að verða ólétt af Elísu en þá gerðist ekki neitt og bjóst ekki við neinum breytingum núna, enda tek ég líka metformin sem á að hafa svipuð áhrif.“
Fjölblöðruheilkenni á eggjastokkum (PCOS eða Polycystic ovary syndrome) er innkirtlasjúkdómur sem hrjáir konur á frjósemisskeiði og hefur í för með sér óreglu á hormónakerfi líkamans. Lesa má nánar um PCOS á Heilsuveru.
Katrín Edda segist eftir aðeins nokkra daga hafa fundið fyrir hormónabreytingum, þyngdaraukningu og eins og hún væri með egglosútferð og verki í líkamanum.
„Síðan fór líkaminn í svipað form en nú í gærmorgun akkúrat 2 vikum síðar tók ég eftir að ég var aftur búin að þyngjast, smá bloated og seinna um daginn BLÓÐ í nærbuxunum!
Ég á ekki dömubindi né túrtappa en í þessum skrifuðu (klukkan er 11:30) hefur þetta aukist og innleggin mín þola þetta ekki lengur svo ætli ég verði ekki að fara út í búð að kaupa dömubindi!!
Ps: ómæ, eru konur í alvöru að upplifa þetta í HVERJUM mánuði?? Þetta er sturlað.
Alls ekki þægilegt en vá hvað ég er glöð.“
Í myndbandinu hraðar Katrín Edda sér út í búð að kaupa tíðavörur og segist vera mjög spennt hvort þetta sé það sem hún megi búast við núna, blæðingar mánaðarlega.
„Í fyrsta skipti á ævinni, ég er mjög spennt, ég er enn í sjokki.“