

Dóra hefur staðið í ströngu undanfarin misseri vegna harðrar deilu um höfundarrétt og viðurkenningu á framlagi hennar að þáttunum.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Dóra að samkomulag í málinu hafi náðst þann 17. apríl síðastliðinn. Bætir hún við að greiðsla hafi farið fram, en eftir að lögfræðikostnaður síðustu þriggja ára vegna málsins hafi verið gerður upp standi nánast ekkert eftir.
Það var svo í gær að hún fékk loks staðfestingu á því að eftirfarandi kredit hafi verið sett í leiðréttingarferli á þeim stöðum sem það skiptir hana máli faglega.
„Creator“ á alla þætti
„Story by“ á alla þætti
„Written by“ á 1. þátt undir dulnefninu Hekla Hólm
„Executive Producer“
Dóra segir í færslu sinni að þetta séu sömu kredit og hún bað um áður en þættirnir voru frumsýndir á nýársdag 2024, en hún fékk ekki.
Sjá einnig: Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
„Samkomulagið jafngildir ekki sátt, en það setur mikilvægan lokapunkt eftir langan og erfiðan kafla. Það sem skiptir mig mestu máli er að ég get loks sett þetta mál að baki og þarf ekki að fara í langt og íþyngjandi dómsmál. Þá skrifaði ég ekki undir trúnaðarákvæði sem hamlar tjáningarfrelsi mínu umfram það sem eðlilegt getur talist.“
Dóra tekur fram í færslunni að hún hafi lært mikið af þessari reynslu.
„En það er skýrt fyrir mér að ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist. Ég var í sjúkraleyfi þegar tökum var flýtt án minnar vitundar. Fram að því hafði enginn ágreiningur komið upp, en samt var lokað á aðkomu mína að seríunni sem höfundar og leikstjóra án samtals.“
Dóra segir að málið hafi valdið henni gífurlegu álagi síðustu þrjú árin og það sé ekki sjálfgefið að hún hafi komist heil í gegnum það.
„Til að reyna að fá réttindi mín viðurkennd skrifaði ég mörg hundruð tölvupósta, sem fæstum var svarað, auk ritgerða, greina og meira að segja heila bók. Það ætti enginn að þurfa að eyða árum, heilsu, fjármunum og ómældri orku í að fá grundvallarréttindi sín virt.“
Dóra segist stolt af því að hafa staðið með sér alla leið og vonar að þessi reynsla, sem hún óskar engum að upplifa, geti einhvern tímann orðið til góðs. Nefnir hún að ef kvikmyndabransinn eigi að verða heilbrigður og öruggur vinnustaður þurfi margt að breytast.
Dóra segir að langvinn barátta síðustu ára hafi tekið mikið á og að hún finni fyrir mikilli þreytu eftir að samkomulag náðist. Hún segist þó hlakka til að snúa sér að nýjum verkefnum þegar hún hefur náð að hlaða batteríin og kveðst afar þakklát þeim sem studdu hana í gegnum ferlið.
„Það er ólýsanlegur léttir að þessu sé loksins lokið.“