
Bresk lögregla handtók stuðningsmann Everton á leik gegn Manchester City á mánudag vegna meints kynþáttaníðs í garð Antoine Semenyo.
Leiknum lauk með 3-3 jafntefli en 71 árs karlmaður var handtekinn grunaður um kynþáttahníð, sem tilkynnt hafði verið um úr stúkunni.
Hann hefur verið látinn laus með ákveðnum skilyrðum. Meðal annars fær hann tímabundið bann við að mæta á íþróttakappleiki.
Bæði City og Everton hafa fordæmt atvikið og stutt við bakið á Semenyo opinberlega.
Þetta er í annað skiptið á leiktíðinni sem Semenyo verður fyrir slíku. Fyrra skiptið var í leik með Bournemouth gegn Liverpool á Anfield.