fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Pressan

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn

Pressan
Sunnudaginn 10. maí 2026 19:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ýmislegt bendir til að GLP-1 lyf, sem eru til dæmis megrunarlyfin Wegovy og Ozempic, geti einnig unnið gegn fíkn og hjálpað þeim sem eru háðir örvandi efnum.

GLP-1 var þróað sem megrunarlyf en í nýrri bandarískri rannsókn kom í ljós að jákvæð „hliðaráhrif“ kunna að leynast í efninu.

Videnskab.dk skýrir frá þessu og vitnar í rannsóknina sem hefur verið birt í vísindaritinu BMJ Open Diabetes Research & Care.

Í henni kemur fram að hin svokölluðu GLP-1 lyf geti upp að vissu marki unnið gegn fíkn í margar tegundir örvandi efna, þar á meðal eru áfengi, kókaín, nikótín og ópíóíðar.

Höfundar rannsóknarinnar notuðust við heilsufarsupplýsingar 600.000 bandarískra uppgjafahermanna sem allir þjáðust af sykursýki 2. Fylgst var með heilsufari þeirra í allt að þrjú ár.

Þeir sem fengu GLP-1 lyf voru bornir saman við þá sem fengu aðra meðferð.

Hópurinn sem fékk GLP-1 lyf, var í minni hættu á að þróa með sér fíkn í áfengi, nikótín og fíkniefni. Þeir, sem voru í þessum hópi, voru einnig sjaldnar lagðir inn á sjúkrahús vegna fíknivandamála segir í rannsókninni.

Þrátt fyrir þessa niðurstöðu er ekki hægt að slá því föstu að notkun GLP-1 lyfja hafi átt þátt í að minni hætta var á að fólk þróaði með sér fíkn. Þörf er á stærri rannsóknum á þessu sviði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Shoigu sagður ógn við Pútín

Shoigu sagður ógn við Pútín
Pressan
Í gær

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga
Pressan
Fyrir 2 dögum

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna

Martröð á mæðradegi: Nýjar vendingar í einu umtalaðasta sakamáli Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans

FBI-liðar uggandi yfir meintum hefndaraðgerðum Kash Patels vegna frétta um áfengisdrykkju hans