

Nokkra athygli vakti þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar nýtti ávarp sitt á 1.maí til þess að gagnrýna harðlega nálgun Kópavogsbæjar í leikskólamálum, hið svokallaða Kópavogsmódel. Gagnrýndi Kristrún einnig bæjaryfirvöld í Kópavogi fyrir að neita að úthluta lóðum til leigufélagsins Bjargs sem ekki er rekið í hagnaðarskyni en vinnur að því að byggja upp hagkvæmt leiguhúsnæði fyrir fólk í lægri tekjuhópum. Meira hefur þó í umræðunni farið fyrir gagnrýni Kristrúnar á leikskólamálin í Kópavogi. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn hefur svarað gagnrýninni fullum hálsi og segja má að nú hafi hún fengið liðsauka frá vinstri, Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar.
Kópavogsmódelið í leikskólamálum hefur gengið í meginatriðum út á að fyrstu 6 tímarnir hvern dag eru gjaldfrjálsir fyrir foreldra en síðan fer gjaldið stighækkandi eftir það. Módeldið hefur einna helst verið gagnrýnt fyrir að gjöldin fyrir meira en 6 tíma vistun séu þau hæstu á höfuðborgarsvæðinu og bitni mjög á þeim foreldrum sem séu alls ekki í þeirri aðstöðu að geta sótt börn sín eftir 6 tíma.
Egill Óskarsson leikskólastjóri í Kópavogi svaraði einnig gagnrýni Kristrúna á Kópavogsmódelið og benti meðal annars á að módelið hefði verið mótað í víðtæku samstarfi bæjaryfirvalda, starfsfólks og fagaðila. Sagði hann módelið hafa meðal annars haft þau áhrif að draga úr mönnunarvanda og álagi á starfsfólk.
Sólveig tekur undir með Agli í Facebook-pistli sem hún sendi frá sér í morgun.
Hún segist taka undir með leikskólastjóranum:
„Það er vægast sagt undarlegt að sjá forsætisráðherra, fyrst hún á annað borð er að skipta sér af leikskólamálum, ráðast að Kópavogsmódelinu en tala ekki um hrikalegt ástand mála í Reykjavík, sem öll sem einhverja innsýn hafa í málin þekkja vel. Það er leiðinlegt að sjá greint og metnaðarfullt fólk tilbúið til að stunda svo innihaldsrýra pólitík.“
Í því samhengi bendir Sólveig Anna á mikið álag á starfsfólki leikskóla í Reykjavík, viðvarandi mönnunarvanda, gríðarlega háa veikindatíðni (9,9 prósent) og skort á fagmenntuðu starfsfólki. Sólveig Anna segir forsætisráðherra hafa ekki minnst einu orði á öll þessi vandamál Reykjavíkurborgar í ávarpi á 1. maí en vitnað þess í stað í:
„Handónýta skýrslu um að brúa bilið, skýrslu þar sem niðurstaðan er að árið 2030 eigi öll börn við 12 mánaða aldur að fá pláss á leikskóla en að all sekki megi lengja fæðingarorlof, er augljóslega verið að spila ódýra pólitík í atkvæða-veiðiferð. Það finnst mér ekki sæmandi þegar verið að fjalla um svo alvarlegt málefni. Forysta verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkingin láta sem ekkert skipti máli fyrir fólk annað en kostnaður þegar kemur að leikskóladvöl barna en það má einfaldlega ekki vera svoleiðis.“
Minnir Sólveig Anna á um sé að ræða um stofnun þar sem að börn dvelji langa daga. Aðbúnaður þeirra og starfsfólksins sem vinni við að gæta þeirra geti ekki orðið eitthvað aukaatriði. Það sé ekki sæmandi siðuðu samfélagi sem kenni sig við norræna velferð að láta sem ekkert skipti meira máli en peningar, ekki einu sinni börnin okkar.
Segir Sólveig Anna að lokum:
„Það á að ræða kosti og galla Kópavogsmódelsins og spyrja t.d. starfsfólkið þar hvernig þeim líður í kjölfar breytinganna sem þar voru gerðar. Og svo á að bera módelin saman með upplýsandi og málefnalegum hætti. Slíkt væri sæmandi þeim sem vilja láta taka sig alvarlega í svo alvarlegum málaflokki og eitthvað sem við öll hljótum að vilja sjá og skoða.“
Eins og flestir vita hefur Sólveig Anna verið lengi töluvert til vinstri í stjónrmálum og í gegnum tíðina ekki oft mælt því bót sem innleitt er undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Í þessu tilfelli virðist hún hins vegar meta Kópavogsmódelið eingöngu út frá því sjálfu og burtséð frá því hvaða flokkar séu í meirihluta í bæjarstjórn og hafi þar með haft forystu um að innleiða módelið. Í athugasemd við pistilinn hlýtur hún vegar gagnrýni fyrir þetta:
„Það er samt eitthvað krúttlegt við það að sósíalískur verkalýðsforingi stigi fram og verji íhaldið í Kópavogi gegn árásum Samfylkingar. Að berja á Reykjavik og jafnaðarmönnum er alltaf gott tilefni til að blása í lúðra.“
Sólveig Anna svarar að bragði:
„Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið með því að biðja um málefnalega umræðu um eitt alvarlegasta vandamál sem samfélag okkar er að takast á við, sem er vanfjármagnað og hnignað leikskólakerfi?“