fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 10:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og formaður bæjarráðs, og Kristín Thoroddsen, bæjarfulltrúi flokksins og formaður fræðsluráðs bæjarins, birtu um helgina á Facebook tölfræði um innritun í leikskóla í ýmsum sveitarfélögum. Vildu frambjóðendurnir meina að tölfræðin sýndi og sannaði hvað mál stæðu vel í Hafnarfirði og öðrum sveitarfélögum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fer með völd. Á daginn kom þó að tölfræðin var röng og gekkst Orri við því að hafa látið gervigreind taka tölurnar saman. Mistök gervigreindarinnar fólust í því að miða við meðalaldur barna sem fá leikskólapláss í Reykjavík og Reykjanesbæ en hins vegar við lágmarksinntökualdur í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.

Sjá einnig: Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Óskar Steinn Ómarsson, sem situr í 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, benti á þessi mistök og furðar hann sig á viðbrögðum Sjálfstæðismanna við ábendingu sinni. Bæjarfulltrúinn Kristín Thoroddsen hafi eytt ábendingu Óskars og í kjölfarið blokkað hann á Facebook. Það sama gerði oddvitinn, Orri Björnsson, sem og opinber Facebook-síða Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.

Vekur Óskar athygli á þessu á Facebook:

„Á sunnudag gerði ég athugasemd við færslu Kristínar Thoroddsen, formanns fræðsluráðs Hafnarfjarðar, þar sem hún deildi falsfrétt um leikskólamál sem oddviti Sjálfstæðisflokksins sagði gervigreind hafa „kokkað upp“. Ég benti Kristínu kurteisislega á að tölfræði gervigreindarinnar væri röng. Það tók Kristínu innan við fimm mínútur að eyða athugasemdinni og „blokka“ mig á Facebook.

Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, er einnig búinn að blokka mig og í gærkvöldi tók ég svo eftir því að opinber Facebook-síða Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði er búin að blokka mig. Ég sé því ekkert sem frá þessum aðilum kemur og get ekki átt í neinum samskiptum við þá á miðlum Meta. Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur.“

Ábending hans hafi verið einföld. Hann benti á að tölfræðin væri efnislega röng. Að mati Óskars hefði ábyrgt stjórnmálafólk þakkað fyrir ábendinguna, beðist afsökunar og fjarlægt færsluna.

„En ekki forysta Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Hún útilokar gagnrýnisraddir, hleypur í felur og heldur áfram að dreifa slorinu sem gervigreindin „kokkaði upp“ til að koma höggi á pólitíska andstæðinga. Kristín Thoroddsen hefur reyndar fjarlægt færsluna en hvorki viðurkennt mistökin né beðist afsökunar.“

Orri hafi viðurkennt að tölfræðin sé röng en engu að síður ætli hann að „halda slorinu til streitu“ en Óskar telur þetta gefa til kynna að Orra sé það mikilvægara að ná höggi á pólitískum andstæðingum heldur en að deila réttum upplýsingum. Telur Óskar enn fremur að gervigreindarvegferð Sjálfstæðismanna sýni að flokkurinn hafi tapað erindi sínu. Hann freisti þess að stýra umræðunni á fölskum grunni og útiloka þá sem benda á lygina.

„Sjálfstæðisflokkurinn er erindislaus gerviflokkur ataður slori. Það er þá við hæfi að gervigreindin hafi breytt merki flokksins í máf.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð