fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 10:48

Eiríkur Rögnvaldsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus segist hafa fengið ábendingu um hver standi á bak við nafnlaust bréf sem honum barst. Varðaði bréfið látinn afa Eiríks. Segir Eiríkur bréfið ósmekklegt og andmælir fullyrðingum um að hann sé að taka það of alvarlega.

Eiríkur hefur greint frá bréfinu á Facebook. Í bréfinu var fullyrt að afi Eiríks birtist honum öðru hverju í draumi og hefði áhyggjur af framtíð íslenskunnar. Sagt var að afi Eiríks væri óánægður með hann og vilji að hann skipti um nafn. Eiríkur sagði að fólk gæti að sjálfsögðu verið ósammála honum en það væri ósmekklegt og óviðkunnanlegt að blanda löngu látnum afa hans inn í það.

Eiríkur fékk nafnlaust bréf – „Einstaklega ósmekklegt og óviðkunnanlegt að blanda löngu látnum afa mínum í það mál“

Eiríkur segir í nýrri Facebook-færslu að hann hafi fengið meiri viðbrögð við bréfinu en hann bjóst við. Hann segist ekki sammála fullyrðingum um að hann eigi ekki taka bréfinu svona alvarlega:

„Þótt í þeim flestum væri hneykslast á bréfinu var einnig nefnt að þetta væri „djók“ og „stríðni“ og „fyndið“ og ég hefði „gengið í gildruna“ með því að birta bréfið – og sýnir þá væntanlega húmorsleysi mitt. Ég tók þetta svo sem ekki inn á mig þótt mér fyndist það ekki þægilegt, en óháð því hvað kann að liggja á bak við hjá bréfritara er það samt aldrei djók eða fyndið fyrir viðtakanda að fá nafnlaust bréf, sérstaklega þegar látnum ættingjum er blandað í málið.“

Hann tekur heldur ekki undir fullyrðingar um að bréfið hafi augljóslega verið skrifað af gervigreind:

„Gervigreind vinnur bara úr þeim upplýsingum sem hún hefur – annaðhvort þeim sem eru í þjálfunargögnum hennar, eða þeim sem hún hefur verið mötuð sérstaklega á. Í þessu tilviki er ýmislegt í textanum sem útilokað er að hafi verið í þjálfunargögnunum og bréfritari hefði þess vegna þurft að bæta við með því að gefa skipunina „Skrifaðu texta þar sem …“ og tiltaka síðan það sem þyrfti að koma fram í textanum. Það hefði verið a.m.k. jafnmikill texti og bréfið sjálft.“

Segist Eiríkur að lokum hafa fengið trúverðuga en óstaðfesta ábendingu um hver hafi skrifað bréfið en hann muni ekki upplýsa það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð