fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Fréttir

Krefjast skýringa og aðgerða vegna fnyks í Hafnarfirði

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 14:30

Hafnarfjörður. Mynd: FB-síða Hafnarfjarðar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar sammæltist um það á fundi sínum í gær að skýra yrði til fullnustu uppruna olíufnyks sem orðið hefur vart við í bænum. Krefst ráðið þess einnig að stofnanir ríkisins grípi til aðgerða vegna fnyksins og gagnrýnir það að fyrirtæki í bænum, sem séu í mengandi starfsemi, virði ekki reglur og kröfur.

Þórey Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi Viðreisnar í ráðinu óskaði eftir upplýsingum um olíufnyk sem íbúar hafi fundið fyrir undanfarið í hverfum bæjarins, meðal annars á Holtinu og víðar. Óskaði hún eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi uppruna mengunarinnar og hvaða aðgerðir væru fyrirhugaðar til að bæta loftgæði og draga úr mengun sem leggist yfir bæinn.

Það virðist ekki liggja nákvæmlega fyrir hver uppruni fnyksins er og engin gögn um málið fylgja fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs. Í sameiginlegri bókun allra fulltrúa í ráðinu segir að mikilvægt sé að olíufnykurinn sem íbúar hafi orðið varir við fái skýra og heildstæða umfjöllun. Málið varði loftgæði í bænum og hafi áhrif á lífsgæði íbúa. Samkvæmt loftslagsstefnu Hafnarfjarðar sé lögð áhersla á að draga úr mengun og stuðla að heilnæmu umhverfi og því mikilvægt að brugðist sé við með markvissum aðgerðum. Nauðsynlegt sé að skýra uppruna mengunarinnar og tryggja að unnið sé að lausnum sem skili raunverulegum úrbótum.

Það sé því með öllu óásættanlegt að mengunarvarnarbúnaður fyrirtækja í Hafnarfirði í mengandi starfsemi fylgi ekki ítrustu kröfum og gæðastefnu sem þau hafi sett sér og sé forsenda starfsleyfis þeirra. Íbúar og lífríki eigi ekki að gjalda fyrir að fyrirtæki virði ekki þær reglur sem þeim séu sett.

Tiltekur ráðið sérstaklega fyrirtækið Colas, sem rekur malbikunarstöð í bænum, en kennir því þó ekki með beinum hætti um fnykinn. Fyrirtækið hafi fengið fresti endurtekið, ár eftir ár vegna þessa vandamáls, eftirlitsaðilar hafi verið meðvitaðir um vandann og er þá væntanlega átt við að mengunarvarnarbúnaður fyrirtækisins hafi ekki virkað sem skyldi. Að lokum beinir ráðið skilaboðum til ríkisins:

„Umhverfis- og framkvæmdaráð vill að eftirlit sé sterkara. Auk þess mun sveitarfélagið ganga á eftir því að Umhverfisstofnun sinni skyldum sínum í þessu máli og veiti ekki endalausa fresti. Umhverfis- og framkvæmdaráð hvetur ríkisvaldið til þess að skerpa mengunarvarnarlöggjöfina til þess að koma í veg fyrir mengunarslys.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Fréttir
Í gær

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Í gær

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“