fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Pressan

Næringarfræðingur segir að fólk eigi að hætta að borða beikon

Pressan
Sunnudaginn 10. maí 2026 17:30

Beikon er vinsælt maður á víst ekki að borða það miðað við það sem næringarfræðingurinn segir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar maður kaupir tóbak eru aðvörunarmiðar á umbúðunum sem vara við heilsufarslegri áhættu þess að nota tóbak, það er að segja krabbameini. Breski næringarfræðingurinn Denis Corpret vill að samskonar aðvaranir verði settar á beikonpakka.

Í samtali við The Guardian sagði hann að neytendur viti ekki hversu hættulegt ofurunnar kjötvörur eru. „Flestir vita ekki að WHO flokkar beikon og skinku, sem hefur verið meðhöndlað með nítríti, í sama flokk og tóbak og asbest,“ sagði hann.

Nítrín getur breyst í nítrósamín í líkamanum en það efni er nátengt auknum líkum á krabbameini. Það er ástæðan fyrir að Corpret og fleiri, vilja setja aðvörunarmerki á beikonumbúðir.

Tine Sundfør, næringarfræðingur, sagði í samtali við Dagbladet að ógnandi og kvíðavekjandi upplýsingar virki ekki, eða að minnsta kosti ekki mikið. Hún segir að betra sé að hjálpa neytendum að taka betri ákvarðanir. Það sé til dæmis hægt að gera með því að hafa áhrif á verðið. Hún benti á að rannsóknir hafi sýnt að sykurskattur dragi úr því magni sykurs sem fólk kaupir.

Hún vill því að aukagjöld séu lögð á ofurunnar kjötvörur en á móti verði gjöld á fisk, kjúkling og magurt kjöt lækkuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt
Pressan
Í gær

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap
Pressan
Í gær

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Í gær

Pútín sagður fela sig í neðanjarðarbyrgi vikum saman – Óttast valdarán

Pútín sagður fela sig í neðanjarðarbyrgi vikum saman – Óttast valdarán
Pressan
Fyrir 2 dögum

Veitingahúsaeigandi í Houston talinn hafa myrt fjölskyldu sína

Veitingahúsaeigandi í Houston talinn hafa myrt fjölskyldu sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Heilaþoka“ eftir McDonald’s-máltíð talin mögulegur þáttur í banaslysi þriggja lögreglumanna

„Heilaþoka“ eftir McDonald’s-máltíð talin mögulegur þáttur í banaslysi þriggja lögreglumanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta kom lögreglu á spor FedEx-morðingjans – „Þú tókst ekki bara líf, þú eyðilagðir fjölskyldu“

Þetta kom lögreglu á spor FedEx-morðingjans – „Þú tókst ekki bara líf, þú eyðilagðir fjölskyldu“