fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fókus

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 27. apríl 2026 10:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta tekur Ragga fyrir hugtakið gaslýsingu, útskýrir hvað það er og hvaðan það kemur og hver tilgangurinn er með því að beita því.

„Gaslýsing kemur úr kvikmynd þar sem eiginmaður vill komast yfir auðæfi konu sinnar og skrúfar kerfisbundið niður í gaslömpunum en þrætir við hana að það sé meira myrkur og hún sé bara eitthvað klikkuð.

Tilgangurinn með gaslýsingum er að geta stjórnað þér eins og strengjabrúðu, móta þig eins og leir fyrir eigin þarfir og sverfa í sjálfstraustið eins og aldan sem lemur steininn yfir langan tíma og þannig ertu líklegri til að þola svívirðingar og ofbeldi.“

Mynd: Ragga nagli

Ragga segir að þegar við verðum ítrekað fyrir gaslýsingu af hendi annarra þá finnist okkur:

Að við berum ábyrgð á tilfinningum annarra.

Að við séum bara athyglissjúk.

Að við séum dramadrottningar.

„Þá innrætum við okkur þessa sjálfsgaslýsingarrödd og sósum okkur í henni alla daga í hausnum.

Verðum rugluð í ríminu um eigin tilfinningar, upplifanir og minningar.

Þú efast stöðugt um hvort þín eigin upplifun af atburðum sé rétt.

Þú telur að eigin viðbrögð séu of dramatísk.

Þú veltir stöðugt fyrir þér hvort þú sért of viðkvæm(ur).

Þú sért ekki normal.

Finnst þú aldrei gera eða vera nóg.

Að þín vandamál séu ekki nógu mikilvæg.

Þessi innri rödd er eins og iðnaðarlím sem geirneglir þig í lágu sjálfsmati og bældu sjálfstrausti.“

Ragga segir okkur öll hafa rétt á að upplifa allt tilfinningarófið.

„Gera mistök, verða reið, pirruð, afbrýðissöm og ósátt.

Þú þarft ekki að vera sammála öllum.

Þú átt ekki að réttlæta ósanngjarna framkomu við þig.

Þó aðrir séu að kljást við eitthvað stórt, þýðir ekki að þín vandamál séu bara eitthvað drasl.

Það er nógu mikill sori að önnur manneskja hafi gaslýst þig.

Ekki láta eigin rödd halda þér föstum í þeim forarpytti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 1 viku

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“