fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Ísland spilar stóra rullu í athyglisverðri umfjöllun BBC – „Varð ástfanginn af fólkinu“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 24. apríl 2026 18:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wrexham hefur undanfarin ár byggt upp gífurlega stóran aðdáendahóp víða um heim, þar á meðal á Íslandi, sem bregður einmitt fyrir í grein BBC um málið.

Wrexham er frá Wales en hefur liðið prjónað upp enska deildarkerfið síðustu ár, í kjölfar þess að Hollywood-leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney keyptu félagið. Wrexham er nú í B-deildinni, sem stendur í umspilssæti um að komast í úrvalsdeildina.

BBC fjallar sem fyrr segir um áhugann á Wrexham langt út fyrir Bretland. Hjálpaði yfirtaka Reynolds og McElhenny ekki aðeins þar heldur einnig heimildarþættirnir Welcome to Wrexham, sem komu út í kjölfarið.

Félagið á nú aðdáendur í Noregi, Dúbaí, Íslandi og víðar og hefur það einnig haft mjög jákvæð áhrif á fjárhag félagsins, sem og borgarinnar.

Í umfjöllun BBC er meðal annars rætt við Íslendinginn Matthías Matthíasson, sem stofnaði aðdáendahóp Wrexham hér á landi.

„Þegar ég heimsótti Wrexham fyrst varð ég fyrst og fremst ástfanginn af fólkinu. Þetta er ótrúlegur bær með mikið af góðu fólki, sem skapar svo knattspyrnufélagið,“ segir Matthías.

„Ég finn mikla andlega tengingu við félagið og fólkið. Fótbolti er vinsælasta íþróttin á Íslandi og rétt eins og í Wrexham væru liðin ekkert án stuðningsmanna,“ sagði hann enn fremur.

Greinina í heild má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Í gær

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar
433Sport
Í gær

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum