
James Tavernier er sagður á óskalista Tottenham fyrir sumarið.
Þessi 34 ára gamli hægri bakvörður verður samningslaus í sumar, en hann hefur reynst Rangers afar dyggur þjónn.
Tottenham sér Tavernier sem ódýran og reynslumikinn kost. Gæti félagið því fengið hann þó það falli í ensku B-deildina í vor, en liðið er sem stendur í fallsæti úrvalsdeildarinnar.
Tavernier hefur sem fyrr segir verið lykilmaður fyrir Rangers og komið að fjölda marka og stoðsendinga þrátt fyrir að spila sem varnarmaður.
Wolves, sem er fallið í B-deildina nú þegar, ku einnig fylgjast með stöðu mála hjá Tavernier.