fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Leggja allt kapp á það að framlengja við Kane

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 27. apríl 2026 21:30

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bayern Munich hyggst ræða við Harry Kane um nýjan samning eftir tímabilið, samkvæmt staðfestingu frá Karl-Heinz Rummenigge.

Kane er samningsbundinn Bayern til ársins 2027, en félagið vill nú tryggja framtíð enska framherjans enn frekar. Rummenigge segir að Kane hafi þegar gefið skýr merki um að hann vilji vera áfram í München.

„Það er vel þekkt að hann var með ákvæði í samningi sínum sem hann nýtti ekki. Það sýnir að hann vill vera áfram hjá Bayern,“ sagði Rummenigge.

Hann bætti við að markmið félagsins væri skýrt, að framlengja samning hans.

Rummenigge hrósaði einnig Kane fyrir þróun hans undir stjórn Vincent Kompany og sagði hann hafa breyst úr markaskorara í fjölhæfari sóknarmann sem taki meiri þátt í uppspili.

„Hann er orðinn leikstjórnandi líka og notar sendingagetu sína til að koma samherjum eins og Michael Olise og Luis Diaz í færi,“ sagði hann.

Bayern virðist því staðráðið í að byggja framtíð sína áfram í kringum Kane.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stóri Ange tjáir sig um möguleika Tottenham í fallbaráttunni

Stóri Ange tjáir sig um möguleika Tottenham í fallbaráttunni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rashford í annað enskt stórlið í sumar?

Rashford í annað enskt stórlið í sumar?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi