

Umræða hefur skapast eftir að Dominic Calvert-Lewin slapp við refsingu fyrir að toga í hár Marc Cucurella í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar.
Atvikið átti sér stað í leik Leeds United og Chelsea þegar Calvert-Lewin togaði í hár spænska bakvarðarins í fyrri hálfleik. Cucurella féll til jarðar og VAR skoðaði atvikið, en niðurstaðan varð sú að ekkert spjald var gefið.
Margir stuðningsmenn hafa gagnrýnt ákvörðunina og bent á að Lisandro Martinez hjá Manchester United hafi nýlega fengið rautt spjald fyrir svipað atvik þegar hann togaði í hár Calvert-Lewin.
Þrátt fyrir að sumir telji brotin ekki alveg sambærileg hefur mismunandi meðferð dómarateymisins vakið mikla umræðu á samfélagsmiðlum.
Margir hafa kallað eftir meiri samræmi í dómgæslu, sérstaklega þegar VAR er til staðar til að fara yfir slík atvik.