fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 27. apríl 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Bóas Hinriksson, hinn þaulreyndi blaðamaður og Valsari, er ekki hrifinn af því að Stjarnan hafi látið ákvæði fylgja félagaskiptum Samúels Kára Friðjónssonar til Vals um að Reykjavíkurfélagið þyrfti að greiða háar upphæðir fyrir að láta hann spila leik liðanna í kvöld.

Valur keypti Samúel Kára á dögunum en mun að öllum líkindum ekki spila í kvöld vegna ákvæðisins. „Það er leikur sem ég vil aðallega vinna vegna framkomu Stjörnunnar gagnvart Val og Samúel Kára,“ sagði Benedikt í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu um helgina.

„Stjarnan setur inn eitthvað ákvæði, við erum að kaupa manninn á 10 milljónir plús, um að hann megi ekki spila. Af hverju?“ sagði Benedikt enn fremur.

Elvar Geir Magnússon benti þá á að upphæðin hefði verið 12 milljónir og að Valur geti vissulega spilað Samúel Kára í kvöld, með því að reiða fram fjórar milljónir króna fyrir.

„Hann má spila en Valur þarf þá að borga fjórar milljónir aukalega. Það er ákvæði um að hann megi ekki spila, við erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta,“ sagði Benedikt.

Hann hrósaði jafnframt innkomu Samúels Kára á Hlíðarenda. „Djöfulsins leiðtogi er hann. Hann kom inn með presence, talanda og fautaskap.“

Stjarnan og Valur mætast í Bestu deildinni klukkan 19:15 í kvöld á Samsungvellinum í Garðabæ. Bæði lið eru með sex stig eftir þrjá leiki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum