

Sindri Þór Guðmundsson, leikmaður Grindavíkur, birti myndband á samfélagsmiðla í gær þar sem hann furðar sig á dómgæslu í síðasta leik gegn Vestra. Fótbolti.net vakti fyrst athygli á þessu.
Liðin mættust í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar um helgina og á myndbandinu sýndi Sindri hversu illa hann er farinn eftir tæklingu frá leikmanni Vestra. Brotið uppskar enga refsingu.
Sindri birti jafnframt myndband af því þegar hann fékk rautt spjald fyrir tæklingu í leik með Keflavík gegn Fylki fyrir nokkrum árum. Sami dómari, Þórður Þorsteinn Þórðarson, dæmdi báða leiki.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
@sindri.thor Dæmi hver fyrir sig #íslenskttiktok #fótbolti #íslenskt ♬ upprunalegt hljóð – Sindri Þór