fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 27. apríl 2026 10:30

Gianluca Rocchi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gianluca Rocchi, yfirmaður dómaramála í efstu deildum á Ítalíu, hefur sjálfur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar eftir að rannsókn var hafin á meintum brotum hans.

Samkvæmt ítölskum miðlum er Rocchi til rannsóknar vegna gruns um svikula háttsemi á tímabilinu 2024–2025. Ítalska dómarasambandið staðfesti í yfirlýsingu að hann hefði stigið til hliðar á meðan málið er til meðferðar.

Einnig er Andrea Gervasoni, sem hefur umsjón með VAR í efstu deildum, farinn í leyfi vegna rannsóknarinnar.

Rocchi segir ákvörðunina tekna til að tryggja að rannsóknin gangi snurðulaust fyrir sig og segist sannfærður um að hann muni hreinsa nafn sitt.

Meðal ásakana er að hann hafi haft áhrif á val á dómara í leik Inter og einnig þrýst á VAR-dómara í leik Udinese og Parma þar sem vítaspyrna var dæmd eftir endurskoðun.

Ítölsk lög gera ráð fyrir allt að sex ára fangelsi ef sakfellt verður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rashford í annað enskt stórlið í sumar?

Rashford í annað enskt stórlið í sumar?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi