
Julian Alvarez hefur reglulega verið orðaður við stórlið eins og Arsenal og Barcelona í vetur. Hann er þó einbeittur á verkefnið hjá Atletico Madrid.
Alvarez hefur verið frábær fyrir Atletico, hvar hann er á sínu öðru tímabili. Hann er einmitt á leið með liðinu í undanúrslitaeinvígi gegn Arsenal í Meistaradeild Evrópu og var spurður út í orðrómana í aðdragandanum.
„Ég get ekki alltaf verið að svara svona sögusögnum. Ég reyni að einbeita mér að því sem skiptir máli. Ég forðast það að fylgjast með umræðu á netinu,“ sagði hann einfaldlega.
Fyrri leikur Atletico og Arsenal fer fram á miðvikudag.