

Manchester United hyggst að óbreyttu ekki styrkja sig í miðvarðarstöðunni fyrir næsta tímabil.
Samkvæmt Telegraph mun félagið halda sig við núverandi valkosti í miðri vörn nema liðið hrinji algjörlega í síðustu fimm leikjum tímabilsins. Þá fyrst gæti afstaðan breyst.
Stjórnendur United virðast því hafa trú á þeim varnarmönnum sem þegar eru í hópnum og telja ekki nauðsynlegt að fara á markaðinn eftir nýjum miðverði í sumar.
Þetta bendir til þess að leikmenn á borð við Lisandro Martinez, Leny Yoro, Harry Maguire og Matthijs de Ligt verði áfram lykilmenn í varnarlínu félagsins.
Ákvörðunin gæti þó breyst ef frammistaðan versnar verulega á lokasprettinum.