

Liverpool óttast að ferli Mohamed Salah hjá félaginu gæti verið lokið eftir að sóknarmaðurinn meiddist aftan í læri í leik gegn Crystal Palace um helgina.
Salah fór haltrandi af velli á 59. mínútu í 3-1 sigri Liverpool og þarf nú að fara í nánari myndatökur til að meta alvarleika meiðslanna. Þar sem aðeins fáir leikir eru eftir af tímabilinu gæti þetta þýtt að Egyptinn spili ekki aftur fyrir félagið.
Arne Slot gat ekki staðfest hversu lengi Salah verði frá. „Við vitum það ekki enn. Það gæti verið möguleiki en við verðum að bíða og sjá,“ sagði hann.
Slot sagði jafnframt að Salah hefði alltaf hugsað vel um líkama sinn og því væri vonast til að hann nái sér sem fyrst.
„Mo fer ekki auðveldlega af velli. Ef hann biður um skiptingu segir það manni að eitthvað sé að,“ bætti Slot við.
Salah mun yfirgefa Liverpool í lok tímabils og því gæti meiðslin þýtt að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.