fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Maður á sjötugsaldri fannst látinn á salerni – Líklega verið þar í sólarhring

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 26. apríl 2026 12:57

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á sjötugsaldri fannst látinn á salerni á Veltins-Arena, heimavelli Schalke 04, í sorglegu atviki sem hefur hrist upp í félaginu.

Lík hans fannst við hefðbundið eftirlit starfsmanns á fimmtudag og lögregla mætti fljótt á staðinn til að hefja rannsókn. Svæðið var lokað af á meðan rannsakendur unnu að málinu.

Samkvæmt þýskum miðlum var maðurinn, sem var 65 ára og heimamaður frá Gelsenkirchen, viðstaddur viðburð á leikvanginum daginn áður. Talið er að hann hafi fundið fyrir veikindum og fallið til jarðar.

Lögregla segir ekkert benda til saknæms athæfis, en rannsakað er hvers vegna ekki varð vart við að maðurinn hefði horfið fyrr en daginn eftir.

Í yfirlýsingu frá Schalke kom fram að félagið væri slegið yfir fregnunum og sendi aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Í gær

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar
433Sport
Í gær

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum

Segir þetta kröfuna í Kópavogi á komandi vikum