fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

FH-ingar segja fréttir kvöldsins ekki réttar – „Allt var þetta gert í samstarfi við Nike“

433
Mánudaginn 27. apríl 2026 21:36

Mynd - FH á Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna búnings sem félagið klæddist gegn KR í 4-2 tapi í kvöld.

FH er með samning við Nike en lék í Henson búningum í kvöld. Þeir segj ástæðuna vera að félagið hafi ekki viljað frumsýna góðgerðartreyju sína sem hefur verið varabúningur liðsins síðustu ár.

Í frétt Fótbolta.net í kvöld var því haldið fram að gleymst hefði að panta varabúninga. FH segir það rangt í yfirlýsingu, félagið hafi unnið allt í samstarfi við Nike.

FH á svartan varabúning  sem ekki var hægt að nota í kvöld en góðgerðartreyjan er tilbúin og verður frumsýnd í næsta mánuði.

Yfirlýsing FH:
Eins og síðustu þrjú ár mun FH gefa út sérstaka góðgerðartreyju sem þriðja búning sinn í lok maí.

Við höfum leikið sérstaka góðgerðarleiki í treyjunni og einnig gegn KR í vesturbænum, þar sem varabúningur okkar er svartur og ekki gjaldgengur gegn þeim. Þar sem góðgerðartreyjan er ekki komin út í ár var ákveðið að fara ótroðnar slóðir í búningavali kvöldsins.

Ákveðið var að fara í gamla bláa litinn sem prýddi varabúning FH í mörg ár. Treyjan sjálf er frá Henson og er mynstrið óður til Aston Villa treyjunnar sem Henson hönnuðu fyrir þá árið 1986.

FH á svo sannarlega tengingu við Aston Villa – liðið náði glæsilegu jafntefli á Villa Park 2008 og svo hefur núverandi þjálfari liðsins, Jóhannes Karl, spilað fyrir félagið.

Allt var þetta gert í samstarfi við Nike – þar sem við vildum ekki flýta frumsýningu treyjunnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild

Dregið í bikarnum og Bestu deildarliðin mæta til leiks – Eitt lið úr 2. deild
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna

Rooney telur að Arsenal skáki City og nefnir hvers vegna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stóri Ange tjáir sig um möguleika Tottenham í fallbaráttunni

Stóri Ange tjáir sig um möguleika Tottenham í fallbaráttunni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rashford í annað enskt stórlið í sumar?

Rashford í annað enskt stórlið í sumar?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi