

Kínversk knattspyrnuyfirvöld hafa brugðist harkalega við eftir undarlega uppákomu í leik í yngri flokkum þar sem tvö lið skoruðu samtals sex sjálfsmörk til að forðast það að vinna, að því er virðist.
Um var að ræða leik í U-10 ára deildinni í Peking þar sem Dongcheng Sports School 16 Orange og Kickers Lan gerðu 3-3 jafntefli. Liðin reyndu nokkuð augljóslega að tapa leiknum til að fá hagstæðari stöðu í úrslitakeppni.
Atvikið vakti mikla reiði á samfélagsmiðlum eftir að myndband úr leiknum fór í dreifingu. Þar mátti sjá leikmenn vísvitandi skora sjálfsmörk, þar á meðal þegar markvörður annars liðsins stóð kyrr á meðan boltanum var rúllað í netið.
Kínverska knattspyrnusambandið hefur hafið rannsókn á málinu og fordæmir hegðunina harðlega. Þá hefur knattspyrnusamband innan Peking dæmt bæði lið úr keppni og sett nokkra aðila í bann frá allri knattspyrnutengdri starfsemi.
Málið hefur verið gagnrýnt harðlega og þykir sérstaklega alvarlegt þar sem um er að ræða börn undir 10 ára aldri.
Myndband af atvikinu er hér ofar í fréttinni.